kerfisbreytingar í framhaldsskólanum.
Virðulegi forseti. Menntamálaráðherra hefur ítrekað lagt til að kerfisbreytingar á framhaldsskólakerfinu verði leiðin til að framhaldsskólakennarar megi vænta leiðréttingar á sínum kjörum umfram það sem samdist um á almennum vinnumarkaði. Ljóst er að kennarar telja ekki ráðlegt að blanda saman áformum um stórfelldar kerfisbreytingar og kjaraumræðu og telja að ráðherra hafi með útspili sínu gert stöðuna flóknari en ella.
25 þúsund framhaldsskólanemar, heimili þeirra og fjölskyldur eru nú í óvissu og framhaldsskólakennarar hafa sannarlega fært sannfærandi rök fyrir mikilvægi þess að kjör þeirra verði leiðrétt. Það verður ekki við annað unað en að ráðherrann tali umtalsvert skýrar en hann hefur gert hingað til. Það liggur ekki fyrir með afgerandi hætti hvernig ráðherrann sér umræddar kerfisbreytingar fyrir sér þótt ítrekað komi fram að hann telji að markmiðið sé að nemendur nýti tímann betur, eins og hann hefur ítrekað orðað það.
Því spyr ég: Gerir ráðherra ráð fyrir fækkun námseininga til stúdentsprófs eftir kerfisbreytingu? Gerir ráðherrann ráð fyrir sömu kennslu á styttri tíma? Gerir ráðherrann ráð fyrir því að kennslan verði skerpt um einhver tiltekin fög eða einhverjar tilteknar áherslur? Gerir ráðherrann ráð fyrir því að farið verði með verknámið og námskrárnar þar með einhverjum öðrum hætti? Telur ráðherrann að unnt sé að stytta það nám líka? Hvað telur ráðherrann að kerfisbreytingin taki langan tíma? Hvaða hagræðingu sér hann í spilunum? Hverjar eru upphæðirnar? Er að vænta frumvarpa frá ráðherranum til að leiða þessar kerfisbreytingar í lög? Hvaða kostnað telur ráðherrann að kerfisbreytingarnar útheimti? Og loks, hefur farið fram mat á því framlagi framhaldsskólanemenda á vinnumarkaðnum á sumrin sem viðmiðuð kerfisbreyting rýrir umtalsvert?