kerfisbreytingar í framhaldsskólanum.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé nokkuð ljóst að viðfangsefnið væri sennilega einfaldara í sniðum ef í þessum kjarasamningum væri einungis verið að ræða um þær kauphækkanir sem voru á almennum markaði. En ég er nokkuð viss um að þá væri deilan í miklu meiri hnút, að mun erfiðara væri að fást við hana og mun lengra væri í að samningar næðust. Það var þess vegna sem ég lagði málið svona upp. Ég hef talað fyrir því lengi að nauðsynlegt sé að gera umbætur og breytingar á menntakerfi okkar sem snúa að námsframvindunni, að í stað þess að við höfum það sem grunnreglu að við séum fjögur ár að klára framhaldsskólanámið þá horfum við til þess að gera það á þremur árum og förum þá í hóp annarra OECD-þjóða sem klára undirbúningsnám fyrir háskóla á ýmist 12 eða 13 árum, en núna erum við eina ríkið sem tökum 14 ár til að klára það.
Lífskjör þjóða grundvallast í æ ríkari mæli á menntun og ef við ætlum að bera okkur saman við lífskjör annarra þá verður menntakerfi okkar að vera þannig að hægt sé að bera það saman við það sem best gerist annars staðar. Fyrir hvert og eitt einasta ár sem menn koma út á vinnumarkaðinn með menntun sína þá aukast möguleikar þeirra til að afla sér tekna og þannig eykst þjóðarframleiðslan. Það er það sem málið snýst um. Það snýst m.a. um að grípa til aðgerða til að koma okkur úr þeirri stöðu að einungis 44% af íslenskum námsmönnum klára framhaldsskólanámið á tilsettum tíma og skerum við okkur þar úr miðað við aðrar þjóðir hversu lélegt það hlutfall er. Það eru slíkir þættir sem ég tel að við verðum að breyta. Ég tel að það sé tækifæri til þess og með því að nýta betur tíma nemendanna nýtum við vissulega betur fjármagnið og þar með getum við borgað kennurum hærri laun. Ég er því ekki sammála því að verið sé að gera kjarasamningana erfiðari með þessu, ég tel þvert á móti að í þessu sé fólgið það færi sem ég lýsi hér. Það væri mun erfiðara að fást við kjarasamningana ef ekkert væri á borðinu annað en það sem er á almennum markaði. Ég held að menn hljóti að sjá það í hendi sér.