143. löggjafarþing — 79. fundur,  24. mars 2014.

lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda.

351. mál
[17:04]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er eins og mig grunaði, ekki er fyllilega ljóst hvað verið er að fjalla um, þ.e. hvernig það varðar Ísland ef ekki eru dæmi um að hér hafi verið sett lögbann fyrir dómi, hvorki innan lands né erlendis af viðkomandi samtökum. Mér finnst skipta miklu máli í sambandi við þetta og vil tala fyrir því að við höfum samkomulag um þriðja geirann. Ég tel gríðarlega mikilvægt að við höfum samtök sem eiga að gæta ákveðinna hagsmuna í landinu og hafa alveg skilgreint hlutverk. Ég spurði af því að Neytendasamtökin eru nefnd, það eru líka nefnd önnur samtök. Ég sé ekki fyrir mér hverjir það eiga að vera, það getur verið Neytendastofa. Ég tel mikilvægt að það sé skilgreint. Ég hef sjálfur verið talsmaður þess, og ég fæ kannski tækifæri til að koma betur að því í stuttri ræðu í framhaldinu, að þriðji geirinn verði efldur, að gert verði samkomulag við félög sem gegna ákveðnu hlutverki m.a. til þess að fylgjast með réttindum eins og t.d. í neytendamálum. Það geta verið hverjir sem er, sjúklingasamtök, það geta verið hagsmunasamtök fyrir ákveðna hópa, að þau njóti ákveðinna réttinda.

Við unnum að því á sínum tíma og höfum verið að bíða eftir að sett verði lög um þriðja geirann, þ.e. um félög sem njóta sérstöðu og hafa viðurkenningu af stjórnvöldum fyrir að gegna ákveðnu hlutverki við að verja einstaklingana gagnvart ríkinu í tilteknu máli. Til þess getur engu að síður þurft að tryggja þau fjárhagslega, svo þau hafi möguleika, og náttúruverndarsamtök þyrfti jafnvel að tryggja enn þá betri stöðu til þess að geta haft það hlutverk gagnvart ríkinu.

Mig langar biðja um dæmi um upptalninguna sem á að koma í reglugerð og um önnur samtök en Neytendasamtökin, sem hér eru nefnd, sem gætu komið til álita og um að fyrir nefndina komi frekari upplýsingar um (Forseti hringir.) hvort einhver dæmi séu um að reynt hafi á þessi lög (Forseti hringir.) hingað til.