störf þingsins.
Herra forseti. Ég vil gera að umtalsefni framlag Orkustofnunar til frekari vinnu á sviði verndar annars vegar og mögulegrar nýtingar á virkjunarkostum hins vegar. Þetta innlegg Orkustofnunar á dögunum vekur furðu svo vægt sé til orða tekið. Ég verð að segja eins og er að ég sé ekki betur en með þessu sé vinnan að rammaáætlun, að viðbættum kröfum orkufyrirtækjanna um að halda til streitu svæðum sem ákveðið hefur verið að flokka í vernd og Alþingi hefur samþykkt að skuli teljast í vernd, sett í fullkomið uppnám. Í raun er verið að senda vinnu verkefnisstjórnar um rammaáætlun, staðfestingu Alþingis á þeirri vinnu og lögum um rammaáætlun, langt nef þannig að ég verð að segja alveg eins og er að ég er gersamlega gáttaður. Ég tel að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra, sem gæslumaður rammaáætlunar, eigi að gefa Alþingi skýrslu um þessa stöðu eða láta a.m.k. eitthvað í sér heyra. Ef hann gerir það ekki verður ekki annað séð en að umhverfis- og auðlindaráðherra ætli að láta bjóða sér þessa niðurstöðu úr iðnaðarráðuneytishluta atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og frá Orkustofnun.
Frumlegast er náttúrlega þegar Orkustofnun notar sem röksemdir þessa hvítbók hér, 20 ára gamla, um alla mögulega virkjunarkosti sem til eru á Íslandi og það eigi bara að taka þá aftur upp á borðið. Vita menn hvað er í þessari bók? Það eru fjórar mismunandi útgáfur t.d. af virkjun Hvítár, með eða án Gullfoss. Þannig er þessi bók. Það eru brjálæðislegar hugmyndir um að tæta niður fjölmargar fallegustu laxveiðiár landsins, t.d. að veita vatni úr fjórum laxveiðiám í Þistilfirði og á Langanesströnd yfir í eina þeirra, þurrka upp sumar þeirra, taka vatn úr Selá og Vesturdalsá og skutla því vestur í Hofsá o.s.frv. Það eru tillögurnar í þeirri bók sem Orkustofnun notar sem röksemdir fyrir því að tína út úr henni ýmsar brjálæðislegar (Forseti hringir.) 20 ára gamlar hugmyndir um virkjanir af því tagi. (Forseti hringir.) Ég tel þetta þvílíkt hneyksli að mér finnst að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra eigi að lágmarki að standa (Forseti hringir.) Alþingi skil á þeirri stöðu sem komin er upp.