143. löggjafarþing — 80. fundur,  25. mars 2014.

störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Hæstv. ríkisstjórn hefur réttilega sagt að afnám gjaldeyrishafta sé eitt mikilvægasta úrlausnarefni sem bíður hennar. Ég er því sammála, ég tel að það sé stærsta og erfiðasta og sennilega mikilvægasta efnið sem við þurfum að takast á við. Það þurfum við að gera saman.

Hins vegar verð ég að segja að ég hef áhyggjur af því hversu hægt miðar í því máli. Mér finnst ríkisstjórnin hafa lítið gert, a.m.k. hef ég sem alþingismaður ákaflega litlar upplýsingar um hvað er að gerast í því máli. Mér finnst sem ríkisstjórnin hafi tapað mjög miklum tíma og varla er það í þágu íslenskra hagsmuna. [Farsími hringir í ræðustól.] Ég biðst afsökunar, herra forseti. (Gripið fram í: Ræðumaður …) Ég vil líka rifja upp að hæstv. forsætisráðherra sagði í yfirlýsingu árla kjörtímabilsins að þess væri að vænta að hann eða ríkisstjórnin mundu leggja fram áætlun um afnám gjaldeyrishafta fyrir lok september. September er kominn og farinn en það bólar ekki neitt á þessari áætlun.

Mál eins og afnám gjaldeyrishafta er af þeirri stærðargráðu að mjög mikilvægt er að um það myndist mjög breið samstaða. Það er ekki hægt að mynda hana nema þingið fái einhvers konar upplýsingar og sé með í ráðum.

Ég geri mér vel grein fyrir því sem hæstv. ríkisstjórn hefur sagt, að þetta sé viðkvæmt mál, það þurfi að ganga varfærnislega um það, en þá vil ég líka undirstrika það að nefndir þingsins hafa sýnt að þær geta unnið undir þeim trúnaði sem krafist er af þeim. Ég vil líka rifja upp að hæstv. fjármálaráðherra lofaði því í ræðu 25. febrúar að haft yrði þverpólitískt samráð. Sömuleiðis sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri fyrir skömmu að þegar Íslendingar réðust í afnám gjaldeyrishafta hefðu þeir bara eitt skot í byssunni. Ég tel mjög mikilvægt að það verði ekki feilskot vegna skorts á samráði af hálfu ríkisstjórnarinnar.