143. löggjafarþing — 80. fundur,  25. mars 2014.

menningarsamningar.

[14:21]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu um menningarsamningana. Mikið óskaplega væri gott ef lokaorð hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra hefðu verið höfð að leiðarljósi þegar allar ákvarðanir voru teknar um ferlið varðandi styrki til menningarmála á landsbyggðinni. Þar kom fram að þetta væri farsælt, þetta væri jákvætt, menn væri búnir að gera sér grein fyrir því, en samt var allt saman tekið út úr sóknaráætlun, því breytt og sagt að það ætti að endurskoða allt en svo komast menn að sömu niðurstöðu.

Ég fagna því. Það er nákvæmlega rétt sem hæstv. ráðherra segir, að sú aðgerð að færa ákvörðunartöku um styrki til menningarmála til landshlutanna og yfir til sveitarfélaganna hefur reynst mjög farsæl. Þar var einmitt hugmyndin þegar safnliðir voru færðir úr fjárlögum til menningarráðanna að þeir fengju aukið hlutverk, þeir yrðu ekki bara verkefnastyrkir eða styrkir til einstakra rekstrarþátta heldur yrðu þeir einnig stofnstyrkir. Við hljótum að horfa til þess og gera það í framhaldinu og fylgja því eftir þannig að efla megi menningarstarf á forsendum hvers landshluta fyrir sig eða þess svæðis sem þetta nær til.

Það kom ágætlega fram hér að menn byrjuðu á því að skera þarna niður. Það kemur ofan í þann nauðungarniðurskurð sem hefur verið á síðustu árum. Við skulum ekki gera lítið úr því.

Það er svo merkilegt við margt af því sem hefur verið horft til á þessu ári í sambandi við fjárlögin að það er eins og menn hafi ekkert verið á svæðinu á þeim tíma sem hlutirnir voru að gerast og nú eigi að fara að taka til hendinni. Þá bæta menn í og hafa svo til afsökunar að þeir vissu ekki betur, eða hvað?

Það er búið að vera mikill ágreiningur um úthlutunarreglurnar og því miður hefur ekki tekist sátt í því máli. Það er verið að hringla með þetta. Í desember voru gefnar út reglur, ef ég man rétt. Síðan komu aftur nýjar reglur eftir áramótin. Nú liggja þessir samningar undir óundirritaðir.

Ég ætla rétt að vona það að hæstv. ráðherra standi við það að fylgja því eftir að ákvörðun verði hjá sveitarfélögunum (Forseti hringir.) og að ítarlegar og myndarlegar styrkveitingar verði (Forseti hringir.) til sveitarfélaganna (Forseti hringir.) í gegnum menningarráð á næsta ári.