143. löggjafarþing — 80. fundur,  25. mars 2014.

menningarsamningar.

[14:24]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir umræðuna sem er mjög þörf. Mér fannst líka ánægjulegt að heyra hæstv. ráðherra ljúka ræðu sinni á því að viðurkenna að þessir menningarsamningar hefðu verið mjög gott skref þegar þeir voru gerðir 2001.

Mér finnst vont hvað þetta mál hefur dregist úr hófi. Mér finnst það lýsa ákveðnu stefnuleysi af hálfu stjórnvalda. Ég veit alla vega að hjá Eyþingi fyrir norðan voru styrkir auglýstir í október enda gengið út frá því að samningar lægju fyrir um áramótin. Það var gert með samþykki ráðuneytisins að því er ég best veit. Nú er mars og mér skilst að samningsdrögin hafi verið send til menningarfulltrúanna í þessum töluðu orðum. Það segir sig því sjálft að úthlutun nýrra styrkja hefur ekki farið fram og mörg verkefni eru í uppnámi. Mér finnst ekki eðlilegt að pólitíkin geti sett svona verkefni í uppnám. Ég sakna langtímahugsunar. Það hefði kannski þurft að byrja að skoða þetta mál í ágúst, það hefði verið gott.

Ég veit líka að menningarfulltrúar og sveitarstjórnarmenn hafa eytt miklum tíma og miklum peningum í að berjast fyrir að fá samningsdrögin. Það hefur kostað flugferðir til Reykjavíkur. Það er sóun á tíma og peningum sem hefðu nýst betur í annað.

Ég ætla að taka restina fyrir í seinni ræðu minni.