143. löggjafarþing — 80. fundur,  25. mars 2014.

menningarsamningar.

[14:35]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Forseti. Á árinu 2012 voru gerðar róttækar breytingar á úthlutun óskiptra liða fjárlagafrumvarpsins, bæði safnliða mennta- og menningarmálaráðuneytisins og hv. fjárlaganefndar. Mikil og góð vinna fór fram í ráðuneytinu við greiningar og skiptingu fjármuna þar sem meðal annars var gert ráð fyrir styrkingu lögbundinna sjóða, einnig menningarsamninga landshlutanna. Niðurskurður hafði verið á þessum liðum eins og hér hefur komið fram. Viðurkennt var að þeir hefðu víðtæku samfélagslegu og efnahagslegu hlutverki að gegna en ágreiningur var hins vegar um úthlutunina.

Umbætur hv. fjárlaganefndar gengu út á gegnsæi til að auka traust á því hvernig fjármunum ríkisins er skipt á þarfagreiningu og eftirlit, bætta stjórnsýslu, yfirsýn yfir einstaka málaflokka og faglega umsýslu. Útgangspunkturinn var að fjárlaganefnd og fagnefndir gerðu tillögu um umfang einstaka fjárlagaliða, en lögbundnir sjóðir og landshlutasamtökin og menningarráð landshluta sæju um dreifingu til einstakra verkefna eftir ákveðnum viðmiðum. Ekki voru allir ánægðir með þetta umbótastarf hv. fjárlaganefndar. Óánægðastir voru þeir sem höfðu greiðan aðgang að þingmönnum og fjárlaganefnd.

Landshlutasamtökin sem gera menningarsamninga við ráðuneytið hafa gagnrýnt mikið niðurskurð undanfarin ár og fyrir árið 2014 er hann 10% eins og fram hefur komið. Þau hafa einnig gagnrýnt skiptingu fjármuna á milli landshluta og telja þær reglur sem farið er eftir ógegnsæjar. Landshlutasamtökin hafa lagt áherslu á að reglurnar séu skýrar og öllum ljósar. Það tókst við gerð vaxtarsamninga við atvinnuvegaráðuneytið og við úthlutun frá Byggðastofnun en ekki hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Mikilvægt er, ásamt því að styrkja menningarsamningana sem reynst hafa vel og útvíkka hlutverk þeirra, að settar reglur um skiptingu fjármagns milli landshluta séu skýrar og rökin fyrir þeim sterk.