náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er áhugavert að fá þessi sjónarmið frá manneskju sem er nýbúin að vera í þeirri stöðu að vinna sjálf með löggjöfina sem nýlega er búið að setja.
Annað sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um varðar utanvegaaksturinn og líka kortagrunninn sem menn eru að vinna að og vilja gera. Fram kom í umfjöllun nefndarinnar að slóðarnir svokölluðu eru hugsanlega orðnir lengri en hið formlega vegakerfi, sem þýðir að við erum með óformlegt vegakerfi og formlegt vegakerfi. Og núna ætla menn að færa slóðana inn í kortagrunninn til þess að gera fólki auðveldara fyrir að vera lögmætt þegar það er á ferð um landið, þ.e. að vera löglegt á ferðinni, á löglegum slóðum, en þá er spurningin alltaf þessi, sem hefur vafist aðeins fyrir mér og ég veit að það verður stórt verkefni fyrir þá sem vinna munu kortagrunninn: Hvernig metur maður hvaða slóði fer inn í kerfið og hver ekki? Hvaða mælikvarða sjá menn fyrir sér að geta nýtt til þess? Þarna kemur líka til samspil einkaeignarlóða og svo svæða sem eru í opinberri eigu, þannig að þetta er dálítið margslungið. Og þó að það hljómi ofsalega vel að setja þetta allt inn í kortagrunn þannig að þeir sem fara um landið geti verið vissir um að þeir séu löglegir á ferð þá er ekkert einfalt að búa þennan grunn til vegna þess að þegar slóði er farinn inn í grunninn fer hann ekki þaðan út aftur. Þá getum við líka skilið það að ef slóði fer ekki inn í upphafi verður áfram deilt um hann. Hvernig eiga menn að leysa þetta mál? Þetta er gríðarlega mikilvægt og aðkallandi úrlausnarefni og alls ekki einfalt.