143. löggjafarþing — 80. fundur,  25. mars 2014.

náttúruvernd.

167. mál
[17:34]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna þar sem hann reifaði vel efni máls. Ég er bara með eina spurningu hér í lok umræðunnar og ætla ekki að lengja hana. Ég fór aðeins yfir það í ræðu minni hvernig við sæjum vinnuna fram undan við málið og mig langar að spyrja hv. þingmann, formann umhverfis- og samgöngunefndar, hvort hann deili með mér þeim skilningi um vinnuna fram undan.