143. löggjafarþing — 81. fundur,  26. mars 2014.

störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Þrír þingmenn úr velferðarnefnd hafa óskað eftir því að fá Ragnar Árnason, prófessor við Háskóla Íslands, til að koma fyrir nefndina og gera grein fyrir fullyrðingum sínum og hugmyndum í grein sem hann skrifaði nýlega í Tímarit hagfræðinema, Hjálmar. Í þeirri grein rökstyður hann þá niðurstöðu sína að opinberar heilbrigðistryggingar séu samfélaginu skaðlegar. Mér finnst full ástæða til þess að við ræðum þessi mál í velferðarnefnd. Þó að öllum sé að sjálfsögðu frjálst að setja fram skoðanir sínar í blaðagreinum vekur þetta vissulega ótta þar sem viðkomandi aðili er formaður ráðgjafarhóps í ríkisfjármálum hjá hæstv. fjármálaráðherra. Það er þess vegna alveg fullt tilefni til að fara yfir þessi mál og skoða hve langt þessi hægri sinnaða ríkisstjórn, sem talað hefur fyrir miklum einkarekstri, ætlar hugsanlega að ganga í þessum efnum varðandi heilbrigðiskerfið okkar, hvort þetta endurspegli hug ráðherra og þeirra þingmanna sem hér eru í stjórnarmeirihluta.

Mér finnst fullt tilefni til að skoða það í fullri alvöru.

Við þekkjum að í Bandaríkjunum eru menn að litlum hluta til sjúkratryggðir og innan við 20% Bandaríkjamanna telja kerfið þar gott. Hvaða þjóðfélagshópar ætli mundu nú hagnast á því ef við mundum markaðsvæða heilbrigðiskerfið á Íslandi? Það eru auðvitað þeir tekjuhæstu. Þeir tekjulægstu yrðu auðvitað mjög illa úti og ég tel fulla ástæðu til að (Forseti hringir.) vera á varðbergi gagnvart slíkum hugmyndum þegar viðkomandi aðili er kominn á æðstu staði í þjóðfélaginu.