143. löggjafarþing — 81. fundur,  26. mars 2014.

störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Mig langar að gera að umtalsefni fátækt á Íslandi, þá sér í lagi fátækt öryrkja og þau vandamál sem mjög margir öryrkjar þurfa að glíma við í dag.

Það vill svo til að mér hafa borist mjög mörg bréf sem ég veit að margir aðrir þingmenn hafa líka fengið frá öryrkjum þar sem lýst er því ástandi sem margir öryrkjar búa við í dag. Það ástand er þannig að ég skora á þingmenn úr öllum flokkum að við gerum eitthvað í þessu strax. Allt of margir búa við þær aðstæður að vera bæði veikir og eiga ekki fyrir mat þegar tvær vikur eru liðnar af mánuðinum. Allt of margir hafa ekki efni á að fara til læknis. Allt of margir geta ekki leyst út lyfin sín. Allt of margir viðhaldast í vítahring veikinda út af áhyggjum.

Kerfið sem við höfum búið til og er útfært hjá TR er óboðlegt. Sá sem er öryrki þarf að sanna að hann sé veikur annað hvert ár og ég veit til þess að fólk er byrjað að kvíða fyrir kannski hálfu ári áður en þetta endurmat á að eiga sér stað. Mér finnst að við sem erum heilbrigð eigum að styðja þá sem eru veikir. Til þess búum við í þessu samfélagi þar sem við borgum skatta inn í velferðarkerfi en þetta velferðarkerfi virkar ekki. Ég endurtek að ég skora á þingmenn úr öllum flokkum að við tökum saman höndum og gerum eitthvað í þessu strax.