143. löggjafarþing — 81. fundur,  26. mars 2014.

störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Jóhanna María Sigmundsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Reglulega kemur upp umræðan um hversu illa að sér Íslendingar eru í fjármálalæsi. Mikið var unnið í málum fjármálalæsis á árunum 2008–2009 en þá var meðal annars stofnuð nefnd af þáverandi viðskiptaráðherra til að kanna stöðuna. Það kom í ljós að aðeins um helmingur almennings kann almennilega fjármálalæsi og því væri sérstaklega ábótavant hjá tekjulægstu hópunum og þeim sem hafa litla menntun.

Niðurstaða nefndarinnar varð að lokum sú að orðatiltækið „þetta reddast“ væri ríkjandi í hugum Íslendinga því um leið og minni hlutinn sagðist ekki hafa áhyggjur af fjármálum sínum var meiri hlutinn á því að hann gæti ekki greitt skuldir sínar á réttum tíma næsta hálfa árið.

Vandinn í kennslu fjármálalæsis liggur ekki í því að það vanti námskrár heldur er það frekar vilji og kunnátta kennara sem ákvarðar hvort þetta sé tekið fyrir. Námsefnið er til og kunnáttan er til staðar. Það vantar aðeins verkfæri til að miðla henni.

Þegar við tölum um fjármálalæsi erum við meðal annars að meina að einstaklingur eigi að hafa vit á helstu hugtökum sem koma fyrir á launaseðli hans, hvernig þeir liðir eru reiknaðir, hvers vegna skuli borga skatt, grunn í gerð heimilisbókhalds, hvað kostar að borga með korti, hvernig er best að ávaxta launum eða lífeyrissparnaði og allt eftir því hvernig kerfi er í gangi hverju sinni. Svona kennsla mun styrkja vitund einstaklinga sem og neytenda og auka siðfræði í fjármálum. Það stuðlar einnig að gagnrýnni og upplýstri umræðu og ýtir undir fyrirhyggju í fjármálum. Stýrihópur um eflingu fjármálalæsis í grunn- og framhaldsskólum var settur á laggirnar 2011 og á að ljúka vinnu nú í lok árs.

Við höfum þurft að taka á ýmsum kvillum þess að fjármálalæsi fólks er ekki meira en raun ber vitni og þá má til dæmis nefna smálánin svokölluðu. Ég vona að út úr hópnum komi aðgerðir, hnitmiðuð niðurstaða þar sem Íslendingar eru teknir í fjármálakennslu á mannamáli, því að við getum ekki alltaf treyst á að þetta reddist.