143. löggjafarþing — 83. fundur,  27. mars 2014.

menningarsamningar.

[10:59]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Nú verð ég að endurtaka mig og tala væntanlega aðeins skýrar. Ráðherra var ekki að segja að þessir menningarsamningar yrðu ekki gerðir og að fyrirkomulagið varðandi ferðamálin yrði aflagt. Það sem ég sagði, og nú skal ég tala mjög skýrt svo hv. þingmaður skilji mig alveg örugglega, var að forræði þessara samninga og útdeiling fjármunanna er að færast af hendi þess ráðherra sem hér stendur yfir til byggðamálaráðherrans. Ég sagði einnig að það yrði gert með svipuðum hætti, menningarsamningarnir og ferðamálasamningarnir munu halda sér með svipuðum hætti og verið hefur áður þannig að nú bið ég hv. þingmann að (Gripið fram í.) vera alveg rólegan yfir þessu. Hér er verið að færa verkefni á milli ráðuneyta, milli ráðherra, og það mun ekki hafa áhrif á þessa samninga.