útreikningur örorkubóta.
Virðulegi forseti. Ég á eilítið erfitt með að taka undir allt sem hv. þingmaður segir hér. Ég tel að flokkur hv. þingmanns hafi í fyrri ríkisstjórn reynt að standa vörð um kjör öryrkja, það hafi verið sérstaklega hugað að því máli og það hefur komið fram í þeim tölum sem starfshópurinn sem ég nefndi, starfshópur um endurskoðun almannatryggingakerfisins, hefur sýnt fram á um þær aðgerðir sem var farið í og við höfum staðið vörð um. Þær skiluðu árangri gagnvart þessum hópum. Ég vona að hv. þingmaður sé ekki að gera lítið úr þeim verkum sem flokkurinn hennar fór í á síðasta kjörtímabili varðandi það að standa vörð um kjör öryrkja.
Eins og ég nefndi er síðan vinna í gangi varðandi það að skoða skerðingarhlutfallið. Ég hef líka lagt áherslu á það og fundið fyrir mjög miklum áhuga á aukinni atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og öryrkja. Niðurstöður sem Rannveig Traustadóttir kynnti á nýlegum fundi Öryrkjabandalagsins, um að um helmingur öryrkja væri ekki í neinni virkni, voru mjög sláandi. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við hv. þingmaður tökum höndum saman um að breyta þessu og bæta þar með líka lífskjör öryrkja.