skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl.
Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir síðustu orð hv. þm. Ögmundar Jónassonar. Ég tel og verð að viðurkenna að til dæmis í þeirri nefnd sem ég stýri, umhverfis- og samgöngunefnd, hefur náðst mikil og góð sátt um vinnubrögð, um efnislega meðferð á þeim úrlausnarefnum sem þar eru til umfjöllunar. Og það stendur til bóta. Við verðum samt að segja það hreint og klárt að skýrslan sem hér er til umræðu er áfellisdómur yfir þeim sem að henni stóðu. Það er þannig. Það að andmælaréttur einstakra leikenda sem voru á sviðinu hafi ekki verið virtur er grafalvarlegt mál í lýðræðisþjóðfélagi, þjóðfélagi sem kennir sig við réttlæti, réttarríki, og hefur mannréttindi að leiðarljósi. Það er niðurstaðan.
Að maður skuli verða vitni að því að vegið sé að þeim (Forseti hringir.) réttindum er óboðlegt.