143. löggjafarþing — 83. fundur,  27. mars 2014.

skatttekjur af hverjum ferðamanni og þróun rekstrarumhverfis ferðamannaiðnaðarins.

[13:52]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það er ástæða til að þakka hv. málshefjanda fyrir að taka þetta mál upp. Í þessari sérstöku umræðu hefur þó nokkuð gerst. Hæstv. fjármálaráðherra hefur gefið mjög afdráttarlausar yfirlýsingar. Hann hefur gefið þá yfirlýsingu að við höfum of litlar skatttekjur af ferðamönnum, að úr því þurfi að bæta og að hann bindi vonir við að endurskoðun á virðisaukaskattskerfinu leiddi til þess.

Á mæltu máli hyggur fjármálaráðherra á það að auka tekjur af virðisaukaskatti af ferðamönnum, þá væntanlega með hækkun á virðisaukaskatti þeim sem ferðamenn greiða.

Þá held ég að mikilvægt sé að fjármálaráðherra tali skýrt í þessu vegna þess að ferðaþjónustan þarf að vita í hvað stefnir og hafa á því góðan fyrirvara. Er ráðherra einvörðungu að hugsa um að hækka þann virðisaukaskatt sem er í 0% upp í þau 7% sem almennt eru greidd í ferðaþjónustunni? Telur hæstv. fjármálaráðherra ef til vill koma til greina, til að bæta úr þessu ástandi sem hann telur brýnt, að hækka virðisaukaskattsprósentuna sjálfa, 7%, og hvaða tölu er hæstv. ráðherra þá að hugsa um? Mega menn í ferðaþjónustu eiga von á því að við þessari 7% tölu verði hreyft? Eru menn þá að tala um að færa hana í 10% eða eru þeir að hugsa um 15%, 20% eða 25%? Það skiptir mjög miklu máli að fjármálaráðherra sé alveg skýr um það á hvaða bili hugmyndir um það að auka virðisaukaskattstekjur af ferðamennskunni eru því að þó að það sé eðlilegt að það taki tíma að yfirfæra útfærslur í því er hægt að gefa vísbendingar að minnsta kosti um það hversu langt hann hyggst ganga í því að snúa þessari þróun við. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að það er mikilvægt að snúa þessari þróun við og auka skatttekjur (Forseti hringir.) okkar af ferðamönnum og raunar tekjur almennt. Við þurfum þó líka að gæta vel að samkeppnishæfni greinarinnar.