143. löggjafarþing — 83. fundur,  27. mars 2014.

skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl.

474. mál
[15:00]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég sagði ekki „starfsmenn sjóðsins“ heldur „stjórn hans og framkvæmdastjóri“. Ég tel að ef stjórn sem skipuð er af hinu opinbera, telur að þau lög sem sett eru stríði til að mynda gegn því að hlutverki sjóðsins sé sinnt með sem bestum hætti, til dæmis er varðar þessa áhættusækni, þá eigi hún að sjálfsögðu að bregðast við. Hún er ekki bara framkvæmdaraðili, hún hlýtur að eiga að spyrna við fórum líka og ég tel að þar hafi þessir aðilar brugðist.

Mér finnst það ekki eðlilegt, hvort sem er í stjórn Íbúðalánasjóðs eða LÍN eða nokkurs staðar annars staðar. Ef lög eru sett á Alþingi sem stjórnir telja ekki heppileg eða telja ekki leiða til góðs fyrir starfsemina þá eiga stjórnir að bregðast við. Ég mundi líta þannig á ef ég væri í slíkri stjórn, og þar finnst mér hún hafa brugðist fyrst og fremst.