skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl.
Virðulegi forseti. Ég tel að stór hluti af því tjóni sem Íbúðalánasjóður hefur orðið fyrir hefði orðið hvort sem fjármálakerfið hér hefði hrunið eða ekki. Ég tel að ég hafi fært fullnægjandi rök fyrir því að þessi útlán í gegnum bankana voru fram hjá reglugerðinni um hámarkið, það voru hærri lán en 15,8 milljónir sem sjóðurinn veitti. Til hvers er félagsmálaráðuneytið að gefa út reglugerð um hámarkslán ef það er hægt að fara fram hjá með því að lána í gegnum bankana?
Ég segi líka að vaxtamöndl er glæpur gegn samfélaginu. Hv. þingmaður hefur kannski heyrt talað um möndl með Libor-vexti að undanförnu. Þetta er nákvæmlega sami hluturinn. Sjóðurinn hafði engar lögbundnar skyldur til að mynda vexti.
Að öðru leyti ítreka ég að mér finnst þetta nefndarálit dálítið í þá átt að verja þá starfsemi sem þarna var rekin og hefur verið staðfest hér með í það minnsta 60 milljarða framlagi úr ríkissjóði í töp og það kann að verða miklu meira. Ég tel ekki að ég hafi sagt nokkrum skapaðan hlut stóran. Þetta eru daprar staðreyndir. Tölurnar eru háar í þessu máli.
Ég hef lokið máli mínu að sinni.