143. löggjafarþing — 83. fundur,  27. mars 2014.

skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl.

474. mál
[15:45]
Horfa

Vilhjálmur Bjarnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég segi ósköp einfaldlega að þeir sem keyptu sína fyrstu íbúð á árunum 2005–2008 eru þeir sem urðu fyrir þessu tjóni en ekki þeir sem tóku lán. Ef þeir endurnýjuðu þessi lán voru þeir með sömu lánin fyrir og eftir, það er ekki málið. Málið er, svo ég haldi því til haga, að Íbúðalánasjóður fór fram hjá því sem Alþingi hafði sett honum. Hann fór að lána fram hjá reglugerð félagsmálaráðuneytisins og hann fór að leika allt annað en hann átti að leika.

Við skulum sjá til með þá vegferð sem menn eru að fara í. Ég vona að vandi þeirra sem eru í vanda verði leystur og að hér verði ekki örlætisgerningar, sem mér virðast jafnvel í uppsiglingu.