143. löggjafarþing — 83. fundur,  27. mars 2014.

skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl.

474. mál
[15:56]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég kveð mér ekki hljóðs til að andmæla ræðu hv. þingmanns heldur þakka honum fyrir mjög góða ræðu og gott sögulegt yfirlit yfir þróun húsnæðismála frá félagslegu sjónarhorni á undanförnum árum. Ég get tekið undir flest af því sem hv. þingmaður sagði, ekki síst niðurlagsorð hans um að við þurfum að horfa til þess með hvaða hætti við getum styrkt hinn félagslega þátt húsnæðiskerfisins.