143. löggjafarþing — 83. fundur,  27. mars 2014.

skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl.

474. mál
[16:24]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður hélt hér fram að fólk hefði ekki haft tækifæri til þess að svara því sem fram kemur í skýrslunni en það er ekki alveg rétt, vegna þess að það var gert á nefndarfundum. Það fengu allir sem vildu að koma og menn skrifuðu greinargerðir, skiluðu þeim til þingmanna, þannig að þeir sem um er fjallað í skýrslunni hafa svo sannarlega gert það. Það er þá spurning, fyrst að svona er talað í þingsölum, að því verði beint til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að hún bjóði skýrsluhöfundum að koma og svara fyrir sig líka ef þeir óska svo. Hinir hafa svo sannarlega fengið að gera það og hafa nýtt sér það vel og þingið tekið þeim opnum örmum. Það er ekki sanngjarnt hjá hv. þingmanni að halda því fram að skýrsluhöfundar hafi með einhverjum hætti komið í veg fyrir að þeir sem fjallað er um hafi getað komið sjónarmiðum sínum á framfæri.

Þannig að ég óska eftir því að því verði beint til nefndarinnar að hún a.m.k. bjóði skýrsluhöfundum að koma og svara fyrir það sem borið er á þá hér.