skuldaleiðrétting og lyklafrumvarp.
Virðulegur forseti. Ef hv. þingmaður einbeitti sér nú ekki að innantómum skætingi eins og undanfarin ár heldur liti á stöðuna hverju sinni og þau tækifæri sem eru til staðar og reyndi að nýta þau hvort sem hann er í meiri hluta eða minni hluta þá hefði nú þegar náðst miklu meiri árangur en við horfðum upp á í fjögur ár hjá gagnslausri ríkisstjórn og raunar þremur mánuðum betur þar sem minnihlutastjórn hafði það hlutverk eitt að nýta þau tækifæri sem þá voru til leiðréttingar lána. Þrátt fyrir klúður í meira en fjögur ár hefur nýrri ríkisstjórn nú tekist á innan við ári að setja saman tillögur sem tryggja munu leiðréttingu á því sem kallað er forsendubrestur, þ.e. á áhrifum hins ófyrirsjáanlega verðbólguskots sem var í kringum efnahagshrunið. En að hv. þingmaður skuli enn eina ferðina reyna að halda því fram að menn standi ekki við loforð vegna þess að kostnaður ríkisins sé ekki nógu mikill, tekur út yfir allan þjófabálk í ljósi þess að í fjögur ár reifst (Forseti hringir.) ég við hv. þingmann og fleiri um akkúrat þetta (Forseti hringir.) og reyndi að benda þeim á að kostnaðurinn væri einmitt miklu minni.