143. löggjafarþing — 84. fundur,  31. mars 2014.

húsnæðismál.

[16:07]
Horfa

Vilhjálmur Bjarnason (S):

Virðulegi forseti. Leigumarkaður hefur aldrei verið til skipulegur hér á landi. Þeir sem hafa leigt frá sér fasteignir hafa gert það vegna tímabundins ástands eða vegna viðbótareignar sem hefur verið til í fjölskyldunni. Eini skipulegi leigumarkaðurinn sem hefur byggst upp eru félagslegar íbúðir á Reykjavíkursvæðinu. Það sem hefur valdið hækkun á leiguverði á undanförnum árum er skortur á framboði á leiguhúsnæði, skortur á framboði á lóðum og úti á landi er það óttinn við að byggja, óttinn við þá óvissu að sitja fastur með óseljanlega eign. Auðvitað er það ákveðin óskhyggja að halda að leiguverð og greiðsluverð í séreign geti verið mjög frábrugðið. Ég tel að það muni fylgjast að.

Það kann að vera að hluti af þeim skorti á leigumarkaði sem nú er stafi af því að lánastofnanir gera ríkari kröfur til eigin fjár í fasteignalánum, og þar ber náttúrlega fyrst og síðast að horfa til greiðslugetu viðskiptavinarins sem gengst við þeirri skuldbindingu. Það er því að mörgu að hyggja.

Síðast en ekki síst ætla ég að segja að ég tel að lausnin á þessum vandi liggi ekki í því að hækka húsaleigubætur. Það er veruleg hætta á því að hækkun húsaleigubóta hækki leiguverð og þá eru þeir sem í hlut eiga í sömu klemmu og áður og það ber að varast. Ég sé þá lausn helsta að bæta lóðaframboð og efla atvinnuástandið (Forseti hringir.) úti á landi.

Virðulegi forseti. Ég hef lokið máli mínu.