143. löggjafarþing — 84. fundur,  31. mars 2014.

skóli án aðgreiningar.

[16:35]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Skóli fyrir alla, skóli án aðgreiningar er ein af mikilvægum forsendum áframhaldandi þróunar jafnréttis og jafnræðis í samfélaginu. Sú hugsun byggir meðal annars á alþjóðlegum skuldbindingum Íslands og var fyrst leidd í lög árið 1974. Síðan þá höfum við þróað framkvæmdina.

Þróunin hefur leitt til þess að þrátt fyrir skóla fyrir alla eru reknir sérskólar á landsvísu og sérdeildir við einstaka skóla sem þjóna stundum heilum sveitarfélögum. Nemendur sækja þau sérúrræði ýmist hluta úr degi eða viku, tímabundið eða alla daga skólagöngu sinnar. Mér er ekki ljóst í hvaða mæli nemendum býðst að velja um þátttöku í þeim úrræðum, eða hvort það er alltaf val að vera með eða vera ekki með, eða hvort þetta er stundum eina úrræðið sem býðst.

Markmiðið skóli fyrir alla er gott og á að vera okkur leiðarljós í skólamálum en við verðum að vera raunsæ við framkvæmdina. Þá þurfum við meðal annars að hafa í huga að engin tvö börn hafa nákvæmlega sömu þarfir og þurfum að meta hvað viðkomandi barni er fyrir bestu, og hins vegar að tilhögun skólagöngu eins barns hafi ekki neikvæð áhrif á skólagöngu annars barns.

Það sem liggur fyrir á næstunni er að gera skýrari verklagsreglur á því sviði. Það er mjög mikilvægt að við höfum kerfi sem getur miðlað þekkingu og reynslu milli skóla þannig að þegar nemandi með tilteknar þarfir og aðstæður hefur skólagöngu sé tryggt að starfsfólk þess skóla geti leitað til annarra sem hafa reynslu af skólagöngu barns með svipaðar þarfir, hvort sem sú reynsla liggur í almennum skólum, sérskólum eða stoðkerfi skólanna. Þá þarf góðar verklagsreglur um skipulag skólagöngu þeirra (Forseti hringir.) sem falla ekki beint inn í almenna bekki byggða á reynslu síðustu ára með aðkomu foreldra og starfsfólks og samfélags.