skóli án aðgreiningar.
Herra forseti. Ég vil byrja á að taka algjörlega undir og undirstrika orð hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um að skólinn er fyrir nemendurna. Kennarar verða alltaf nauðsynlegir, millistjórnendur verða líklega minna nauðsynlegir í náinni framtíð en kennararnir virðast alltaf vera áfram mikilvægir.
Hvað er ég að tala um? Jú, ég er að tala um þróunina sem á sér núna stað með upplýsingatækni í skólum eins og speglaða kennslu. Ef við horfum á það að námið eigi að vera fyrir nemendur og ef við horfum á skóla án aðgreiningar losnar strax um mikinn tíma kennarans, sem vanalega fer í það að halda tölu yfir nemendunum þegar þeir koma í skólann, með speglaðri kennslu. Spegluð kennsla snýst um það að fyrirlestrarnir eru teknir upp og þá getur kennarinn náttúrlega valið bestu útkomuna af fyrirlestri sínum og krakkarnir horft á námsefnið heima. Það er heimanámið. Og þegar nemendur koma í skólann reikna þeir til dæmis og kennarinn getur þá gengið á milli og aðstoðað fólk betur. Þetta mun þýða að tækifæri þeirra nemenda sem þurfa að nýta sér það sem verið er að bjóða upp á í skóla án aðgreiningar eru meiri. Þetta býður upp á meiri tækifæri fyrir nemendur sem þurfa meiri aðstoð að velja þá skóla.
Við töluðum líka um einstaklingsmiðaða kennslu og þar komum við aftur að upplýsingatækninni. Það eru ofboðslega góðir hlutir að gerast einmitt núna eins og sést ef lesin er skýrsla World Economic Forum frá því í janúar á þessu ári. Tækifærið þar er að námið verði einstaklingsmiðað, af því að námið sem menn vinna að í tölvunni sinni lærir á þá og alla aðra og sér ákveðin munstur. (Forseti hringir.) Eins og Facebook getur í dag sagt til um það hvenær maður fer í samband getur þetta skólakerfi sagt til um það (Forseti hringir.) hvenær maður fer að missa (Forseti hringir.) áhugann, hvenær áhuginn eykst og hvaða námsefni er líklegast til að auka áhuga (Forseti hringir.) manns og getu.