143. löggjafarþing — 84. fundur,  31. mars 2014.

einkavæðing ríkiseigna.

448. mál
[17:23]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég fór yfir það í ekki mjög löngu máli, enda þurfti þess ekki, að það væru engin sérstök áform um ýmiss konar einkavæðingu af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Hér voru spurningar um Íslandspóst. Það eru engin sérstök áform um einkavæðingu Íslandspósts og Landsvirkjunar. Hv. frammíkallandi og þingmaður Össur Skarphéðinsson spurði hvort ég liti á það sem einkavæðingu ef lífeyrissjóðir keyptu ríkiseignir og hvort til stæði að selja hlut í Landsvirkjun. Að sjálfsögðu væri það einkavæðing ef lífeyrissjóðum yrðu seldar ríkiseignir og það eru engin áform um að selja hlut í Landsvirkjun, hvorki lífeyrissjóðum né öðrum. Það er þó rétt að geta þess að það getur vel verið æskilegt að lífeyrissjóðir eða aðrir komi að fjármögnun, t.d. einkum í verkefnafjármögnun, til að gera okkur enn betur kleift að nýta þau tækifæri sem hér eru til að framleiða umhverfisvæna orku.

Það var afskaplega ánægjulegt að heyra hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur tala svona vel um Landsvirkjun og mikilvægi þess fyrirtækis, gríðarlega mikilvægt fyrirtæki til framtíðar, Landsvirkjun, sagði hv. þingmaður. Ég held að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hafi einhvern tímann talað um fyrirtækið sem gullgæs eða á einhvern hátt lýst því að það væri ómetanlegt vegna þeirra tekna sem það skapaði. Við getum verið sammála um að Landsvirkjun er gríðarlega mikilvægt fyrirtæki fyrir landið vegna þess að með framleiðslu umhverfisvænnar orku skilar það samfélaginu miklum arði.

Virðulegur forseti. Til þess að gera langa sögu stutta getur vel verið að einhvers staðar sé hægt að ná fram hagkvæmni í þágu almennings með því að fela einkaaðilum verkefni. Ég nefndi verkefni í samgöngumálum sem hafa verið framkvæmd af einkaaðilum um langt skeið, en (Forseti hringir.) það eru engin sérstök áform um einkavæðingu.