um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Klukkan sex síðdegis og aftur klukkan hálfsjö boðaði forseti Alþingis þingflokksformenn á sinn fund. Það var gert til þess að greina frá því að fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins vilji ekki mæla fyrir skuldafrumvörpum ríkisstjórnarinnar á morgun, þriðjudag, eins og ákveðið var fyrir rúmlega viku síðan.
Auðvitað hefur hæstv. fjármálaráðherra engin brýnni verkefni á morgun en að mæla fyrir frumvörpum sem snúast um 150 milljarða kr. En þetta kemur sér ákaflega illa því að gert var samkomulag um þessa umræðu fyrir löngu síðan og við í stjórnarandstöðunni vildum greiða því sérstaklega leið að frumvörpin kæmust fljótt á dagskrá þannig að hægt væri að ljúka umræðunni á miðvikudag og koma málunum til nefndar.
Þar sem ríkisstjórnin treystir sér ekki til að mæla fyrir eigin frumvörpum á morgun þá tekst ekki að ljúka umfjölluninni í þessari viku. Þar með tefst um viku að málin komist til nefndar til umfjöllunar þar. Það er því miður bara við ríkisstjórnina að sakast, en maður hlýtur að spyrja sig: Er það bara viðkvæmni hæstv. forsætisráðherra fyrir því að 1. apríl er á morgun sem starf Alþingis er sett í uppnám (Forseti hringir.) eftir að þingflokksfundir hafa verið haldnir, eftir að gerð hefur verið grein fyrir dagskrá vikunnar, (Forseti hringir.) eftir að samkomulag var fyrir löngu gert við stjórnarflokkana um umfjöllun málsins?