um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Á miðvikudaginn þegar tala á um þetta mál að því er virðist hefst þingfundur klukkan 15. Það þýðir að við höfum ekkert ægilega langan tíma til þess að ræða málið við 1. umr., þ.e. áður en það fer inn í nefnd. Nú liggur fyrir að stjórnarandstaðan svokallaða vill gjarnan hraða málinu þannig að það komist í nefnd og fái faglega umfjöllun sem fyrst, það liggur fyrir. En annaðhvort hefur hæstv. forsætisráðherra ákveðið að við þurfum ekki það mikinn tíma hérna til þess að ræða málið þótt það sé stærsta kosningamál kjörtímabilsins eða að hann hefur ákveðið að það sé allt í lagi að nefndin fjalli ekki um málið fyrr en í næstu viku. Og þetta virðist hæstv. forsætisráðherra ákveða að gera vegna eigin viðkvæmni, vegna þess að hann getur ekki hugsað sér að ræða málið 1. apríl, að því er virðist.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að ræða þetta mál á morgun og við ættum að gera það til að afgreiða það sem fyrst, sem fyrst, segir meðlimur stjórnarandstöðunnar, svokallaður, ítreka ég.