leiðbeiningarskylda Tryggingastofnunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir tillögu hennar og munum við eflaust skoða þær. Ég vil hins vegar benda á að á vef Tryggingastofnunar, eins og ég var að reyna að koma að áðan, eru Mínar síður þar sem viðskiptavinir stofnunarinnar hafa aðgang að gögnum er þá varða, þeir geta skoðað gögn eins og greiðsluskjöl, greiðsluáætlanir og önnur bréf, breytt og skilað tekjuáætlun vegna lífeyris, fengið bráðabirgðaútreikning lífeyris, séð stöðu við uppgjör bóta og sent fyrirspurnir og fylgigögn svo eitthvað sé nefnt. Ég vona svo sannarlega að stofnunin muni halda áfram að sinna því.
Ég held að það sé alveg rétt að það er oft verið er að gagnrýna þá þjónustu sem opinberar stofnanir veita. Tryggingastofnun hefur svo sannarlega fengið sína gagnrýni. Hún hefur bent á að það er gífurlegur fjöldi viðskiptavina hjá Tryggingastofnun og spurningin er hvort best sé að koma fyrir þess háttar ráðgjöf sem verið er að kalla eftir frá hagsmunasamtökum hjá Tryggingastofnun eða hvort betra sé að styðja við til dæmis þá félagsþjónustu sem má finna hjá sveitarfélögunum. Við höfum verið að skoða möguleikann á því, og ég kynnti það í ríkisstjórn í dag, að fara í ákveðnar kerfisbreytingar sem snúa að stuðningsumhverfinu við þá félagsþjónustu sem sveitarfélögin veita þar sem við tökum barnaverndarmálin, við tökum þjónustu við fatlað fólk, við tökum þjónustu við aldraða, innflytjendur og reynum þannig að tryggja betur gæði og eftirlit með þeirri þjónustu sem er veitt í gegnum félagsþjónustuna. Spurning er hvort þetta geti verið eitt af því.
Það er svo sannarlega til staðar viðleitni, það er verið að reyna að bæta þjónustuna. Það væri skemmtilegra að geta notað sterkara lýsingarorð en „viðunandi“ um þjónustu Tryggingastofnunar, en eins og hv. þingmaður kannast mjög vel við hafa ekki verið til miklir fjármunir undanfarin ár. Vonandi eru bjartari tímar fram undan.