143. löggjafarþing — 84. fundur,  31. mars 2014.

félagsvísar.

425. mál
[19:24]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Skömmu eftir hrunið sem er nú oft miðað við sem tímatal skipaði þáverandi ráðherra félags- og tryggingamála svokallaða velferðarvakt þar sem settur var af stað rýnihópur til að meta stöðu velferðarmála í samfélaginu, fylgjast með, reyna að hafa púlsinn á því sem var að gerast á þeim tíma og vega og meta hvernig grípa ætti inn í einstaka þætti.

Það kom fljótlega fram í allri þessari vinnu að víðast í stjórnkerfinu vantar tölfræði, það vantar samtímaupplýsingar þannig að hægt sé að meta hvaða áhrif ákvarðanataka á hverjum tíma hefur á hið daglega líf, m.a. í velferðarkerfinu. Í framhaldi af þessari vinnu var í félags- og tryggingamálaráðuneytinu, seinna velferðarráðuneytinu, sett í gang vinna að gerð félagsvísa, þ.e. að safna saman á einn stað upplýsingum sem tengdust heilsufari fólks og heilbrigðismálum almennt, húsnæðismálum, efnahags- og félagslegum þáttum, skuldamálum o.s.frv.

Út úr þessu kom öflug skýrsla þar sem farið var yfir stöðuna en hún hafði þann galla að hún var miðuð við ákveðna punktstöðu og kom frá mörgum stöðum. Það kostaði gríðarlega vinnu að safna þessum upplýsingum á einn stað. Í framhaldi af þessu kom fram sú hugmynd að framlengja þetta með því að fá Hagstofuna til að vinna að slíkum félagsvísum, vinna úr þessu gagnasafni, safna því reglulega saman og hafa upplýsingar á þriggja mánaða fresti um stöðu mála. Þetta endaði með því að gerður var samningur milli velferðarráðuneytisins og Hagstofunnar um að vinna að þessum félagsvísum. Sá samningur var gerður í desember 2012 og í framhaldinu voru ákveðnar fjárveitingar til verkefnisins og ráðinn starfsmaður.

Hugmyndin var sú að þessir félagsvísar yrðu síðan birtir í tengslum við hagtölur eins og hverjar aðrar upplýsingar um það hvernig samfélagið gengi. Það átti ekki eingöngu að meta hagvöxt heldur einnig félagslega stöðu á hverjum tíma og þannig væri hægt að fá breiðari umræðu um það hvernig samfélaginu reiddi af.

Nú er liðinn nokkuð langur tími og þessir félagsvísar hafa ekki komið fram en ég treysti á og veit raunar að það er búið að ráða starfsmann á Hagstofuna og það hefur verið unnin töluvert mikil vinna. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hver staðan sé á þessari vinnu samkvæmt samningi við Hagstofuna frá því í desember 2012 og hvenær áætlað sé að birta þessa félagsvísa, þá í hvaða formi þeir verði birtir og hversu oft á ári.