143. löggjafarþing — 84. fundur,  31. mars 2014.

félagsvísar.

425. mál
[19:28]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbjarti Hannessyni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Hún hefur sannarlega verið þess virði að bíða hér í allan dag eftir að fá að svara henni því að þetta er mjög merkt verkefni sem á uppruna sinn í velferðarvaktinni. Hugsunin þar, eins og hv. þingmaður ræddi um, er að megintilgangurinn væri að birta saman á einum stað tölulegar upplýsingar til að auðvelda stjórnvöldum og almenningi að fylgjast með þróun og breytingum í samfélaginu. Þarna er lögð áhersla á að birta tölur um tiltekna hópa og aðstæður þegar það á við og þá væri hægt að skoða áhrif opinberra aðgerða og þjóðfélagsbreytinga á einstaklinga og þjóðfélagshópa og einnig að draga fram stöðu þeirra sem verst standa í samfélaginu. Ef þið hafið ekki kynnt ykkur þessa félagsvísa hvet ég ykkur endilega til þess. Þeir eru birtir árlega á vef ráðuneytisins.

Eins og hv. þingmaður fór í gegnum spyr hann um stöðuna á vinnu við félagsvísa samkvæmt samningi við Hagstofu Íslands frá því í desember 2012 sem og um það hvenær birting félagsvísa sé áætluð, í hvaða formi og hversu oft á ári. Ég er þegar búin að nefna að það er áætlað að birta þá árlega á vef ráðuneytisins.

Eftir að velferðarráðherra, væntanlega núverandi hv. þm. Guðbjartur Hannesson, fór með minnisblað fyrir ríkisstjórn var tekin ákvörðun um að ganga frá samningi við Hagstofu Íslands. Þá réð Hagstofan sérfræðing til að vinna að uppfærslu og þróun félagsvísanna. Frá því að Hagstofan tók við vinnunni við gerð félagsvísanna hafa þeir verið uppfærðir og birtir á vef velferðarráðuneytisins, Félagsvísar 2013, 2. útgáfa. Sú ákvörðun var tekin að 2. útgáfa Félagsvísa yrði óbreytt frá 1. útgáfu Félagsvísa frá því í febrúar 2012 en í 3. útgáfu verða hins vegar gerðar ákveðnar breytingar. Það er unnið að þeim í samstarfi við Hagstofuna. Sérfræðihópurinn með fulltrúum ráðuneyta og háskólasamfélagsins hefur tekið til starfa samkvæmt ákvæðum samningsins sem var undirritaður og hans hlutverk er þá að rýna félagsvísana og meta tilefni til nauðsynlegra breytinga á núverandi efnisþáttum þeirra.

Eins og ég nefni er sem sagt áætlað að birta þá árlega en það verða líka valdar töflur og myndir úr félagsvísunum sem verða birtar oftar en árlega á vef Hagstofu þar sem það er gerlegt og því til viðbótar verður útgáfa fjórum sinnum á ári samkvæmt ákveðnum efnisflokkum þar sem farið verður á dýptina í einstökum flokkum. Efnisflokkarnir eru sex: börn, lífskjör, húsnæðismál, heilsa, atvinna og virkni og félagsvefur. Birtingin verður þannig á vef Hagstofunnar og er 1. útgáfa áætluð nú í apríl 2014 um húsnæðismál. Það er stefnt að eins mikilli samtímabirtingu og hægt er. Að baki félagsvísanna verður gagnagrunnur aðgengilegur öllum til vinnslu og skýringargögn.

Ég held að þetta hafi verið mjög gott framtak, mikilvæg ábending sem var brugðist við frá velferðarvaktinni. Hér má til dæmis finna mjög áhugaverðar upplýsingar um húsnæðisstöðu, mismunandi heimili með börnum eða án barna, upplýsingar um leigjendur og hvort þeir fái húsaleigubætur, upplýsingar um skuldirnar, atvinnuleysisbætur, útskriftir og heilsu fólks. Ég held að þetta sé mjög mikilvægt því að við erum sífellt að fá fram meiri og meiri upplýsingar og rannsóknir sem sýna það og staðfesta að staða fólks í samfélaginu og aðstæður sem til dæmis börnin okkar alast upp við skipta verulega miklu máli. Nýlega las ég um rannsókn í tímaritinu Science þar sem fylgst var frá árinu 1972 með tveimur hópum barna úr fátækum fjölskyldum. Í fyrsta lagi átti í rannsókninni að fjalla um það hvort aukinn stuðningur, betra fæði og leikskóli gæti leitt til þess að börnin yrðu gáfaðri. Rannsóknin hefur sýnt það núna rúmlega 40 árum seinna að þetta leiddi ekki bara til þess að börnin yrðu gáfaðri og stæðu sig betur í skóla heldur urðu þau líka miklu heilbrigðari. Það hvernig við búum að fjölskyldum okkar og heimilunum, og þar af leiðandi þessar tölur sem koma fram í Félagsvísunum, skiptir verulega miklu máli fyrir stjórnvöld og samfélagið í heild til að móta ákvarðanir sínar.

Takk kærlega fyrir þetta framtak.