fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991.
Ég ætla ekki að fjölyrða í löngu máli um mikilvægi erlendrar fjárfestingar fyrir íslenskan efnahag, ég held að okkur sé það öllum kunnugt, og þar með fyrir íslenskt atvinnulíf en það hefur verið talsvert í umræðunni undanfarin missiri.
Til að efla erlenda fjárfestingu er mikilvægt að lagaumhverfið sé skýrt og hefur hæstv. iðnaðarráðherra því skipað starfshóp til að endurskoða lög um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri í heild sinni.
Frumvarp það sem ég mæli fyrir er því fyrsta skrefið í heildarendurskoðun á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Ljóst er að sú heildarendurskoðun mun taka einhvern tíma og mikilvægt að vinna málið í víðtæku samráði við hagsmunaaðila og hverja þá sem að verkefninu koma. Efni frumvarpsins er hins vegar í samræmi við tillögur sem fjárfestingarvaktin svokölluð, sem var skipuð af fyrri ríkisstjórn, skilaði til ráðherra í júní síðastliðnum en í þeim tillögum er kveðið á um afnám tilkynningarskyldu á alla erlenda fjárfestingu sem og brottfall nefndar um erlenda fjárfestingu. Samkvæmt athugasemdum sem ráðuneytið fékk við frumvarpið ríkir sátt um þær breytingar sem lagðar eru fram í þessu frumvarpi sem liggur fyrir þinginu. Því var það mat hæstv. iðnaðarráðherra og ráðuneytisins að óþarfi væri að láta þær bíða frekari endurskoðunar á lögunum í heild. Þá eru þessar tillögur einnig í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að einfalda regluverk þar sem þess er nokkur kostur.
Í fyrrgreindum tillögum fjárfestingarvaktarinnar kemur fram að núgildandi lög snúist öðru fremur um bönn og takmarkanir. Því skorti mjög á að gera tóninn í lögunum jákvæðari og takmarkanirnar skýrari. Óskýrar leikreglur og matskenndir þættir dragi úr trausti og lækki einkunnir sem aðilar á borð við OECD gefa fjárfestingarumhverfinu. Í því sambandi bendir fjárfestingarvaktin sérstaklega á reglu um tilkynningarskyldu allrar erlendrar fjárfestingar og telur mikilvægt að afnema þá skyldu. Slíkri skyldu fylgi að mati fjárfestingarvaktarinnar neikvæð skilaboð, kvaðir og vantraust. Þá þurfi að tilkynna um allt of margar fjárfestingar samanborið við þann litla hluta sem óvíst er að standist lög. Þá lagði fjárfestingarvaktin einnig til að nefnd um erlenda fjárfestingu yrði lögð niður vegna þess að hún væri liður í ógagnsærri stjórnsýslu sem dragi úr trausti og lækki einkunnir fjölþjóðlegra stofnana á borð við OECD fyrir fjárfestingarumhverfið í heild sinni.
Þá er einnig vert að benda á, virðulegur forseti, líkt og rakið er nánar í frumvarpinu að ESA hefur sent íslenskum stjórnvöldum rökstutt álit sitt þar sem fram kemur að stofnunin telji að tilkynningarskylda laganna brjóti gegn ákvæðum EES-samningsins því að hún sé of víðtæk og óþarflega íþyngjandi. Í 4. gr. laganna er kveðið á um að takmarkanir á fjárfestingu erlendra aðila hvað varðar fiskveiðar og fiskvinnslu, eignarhald á virkjunarréttindum vatnsfalla og jarðhita, orkuvinnslu og dreifingu og flugrekstur. Núgildandi tilkynningarskylda gerir hins vegar ráð fyrir að tilkynna beri til ráðherra alla erlenda fjárfestingu jafn skjótt og samningar eða ákvarðanir þar að lútandi liggja fyrir. Tilkynningarskyldan á því ekki bara við á þeim sviðum þar sem takmarkanir á heimildir fjárfestinga eru í gildi heldur líka um fjárfestingu á sviði þar sem engar takmarkanir gilda. Verður að telja að svo almenn regla sé óþarflega íþyngjandi.
Með frumvarpi þessu er tilkynningarskyldan því afmörkuð við þau svið þar sem takmarkanir gilda í stað þess að gilda um allar fjárfestingar erlendra aðila. Þá er einnig í frumvarpinu, virðulegur forseti, lagt til að nefnd um erlenda fjárfestingu verði lögð niður en það er mat fjárfestingarvaktarinnar að hún sé liður í ógagnsærri stjórnsýslu sem dragi úr trausti og lækki einkunnir fjölþjóðlegra stofnana á borð við OECD fyrir fjárfestingarumhverfi.
Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur eftirlitshlutverk samkvæmt 12. gr. laganna sem felst í því að fylgjast með ákvæðum 4. gr. um takmarkanir á fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, að henni sé framfylgt og er ráðherra til ráðuneytis um leyfisveitingar.
Hæstv. forseti. Það er mat hæstv. iðnaðarráðherra að hér sé á ferðinni þýðingarmikið frumvarp sem muni stuðla að öruggara og skýrara umhverfi fyrir erlenda fjárfesta og vera til bóta. Hér er því tekið lítið skref sem víðtæk sátt ríkir um og ætti einnig að vera víðtæk sátt um hér á hinu háa Alþingi þar sem fjárfestingarvaktin var, eins og ég vakti athygli á áðan, skipuð af fyrrverandi ríkisstjórn og sátt hefur verið um að taka á þeim verkefnum sem eru sérstaklega nefnd í frumvarpinu.
Að lokinni umræðu legg ég því til, virðulegur forseti, að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar.