143. löggjafarþing — 85. fundur,  31. mars 2014.

fjármálastöðugleikaráð.

426. mál
[20:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um fjármálastöðugleikaráð. Frumvarpið er á þskj. 765 og er 426. mál þingsins. Frumvarpið er hluti af vinnu fjármála- og efnahagsráðuneytisins við að styrkja umgjörð hagkerfisins og fjármálamarkaða. Hvað viðkemur umgjörð hagkerfisins má einnig nefna frumvarp til laga um opinber fjármál og endurskoðun á lögum um Seðlabanka Íslands. Á sviði fjármálamarkaðar vinnur ráðuneytið nú að verulegum umbótum á lögum um fjármálafyrirtæki, auk þess sem stefnt er að því að leggja fyrir næsta þing frumvarp um skilameðferð fjármálafyrirtækja og ný heildarlög um innstæðutryggingar.

Nefnd sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði í desember 2012 til að semja frumvarpsdrög um hvernig tryggja ætti fjármálastöðugleika skilaði tillögum sínum í apríl 2013. Voru drögin sett á vefsíðu ráðuneytisins og unnið úr þeim ábendingum sem bárust við drögin ásamt því sem tekið var á ýmsum álitaefnum sem upp komu vegna breytinga á verkefnasviðum ráðuneyta þegar núverandi ríkisstjórn tók við.

Fjármálakreppan sem skall með fullum þunga á okkur haustið 2008 leiddi í ljós skort á tengslum heildar- og eindaeftirlits á fjármálamörkuðum sem leiddi til þess að enginn einn aðili hafði heildaryfirsýn yfir stöðu fjármálakerfisins. Með ákvæðum frumvarpsins er brugðist við þessum veikleika fjármálakerfisins. Ekki er svo að skilja að engar tilraunir hafi verið gerðar til að hafa þessa yfirsýn fyrir fjármálakreppuna. Nefnd um fjármálastöðugleika hefur verið vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og tillögugerðar vegna fjármálastöðugleika og samhæfingar viðbúnaðar við hugsanlegu fjármálaáfalli. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar ráðuneyta, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands. Ekki er fjallað um nefndina í lögum en hún hefur starfað á grundvelli samkomulags ráðuneyta og stofnana frá 2. apríl 2012 sem leysti af hólmi eldra samkomulag frá 6. júlí 2010.

Fyrir þann tíma höfðu ráðuneyti og stofnanir átt samráð um fjármálastöðugleika og viðbúnað á grundvelli samkomulags frá árinu 2006. Fjármálakreppan sem herjað hefur á alþjóðlega fjármálamarkaði undanfarin ár hefur leitt í ljós ýmsa veikleika í regluverki og eftirliti með fjármálastarfsemi, bæði hér á landi sem í öðrum löndum.

Við getum bent á þrjá veikleika hér sérstaklega. Í fyrsta lagi var ekki nægjanlegt eftirlit með fjármálakerfinu sem heild. Það skorti þessa heildaryfirsýn sem ég hef hér nefnt, heildar- eða kerfiseftirlit, þjóðhagsvarúðareftirlit, þ.e. eftirlit sem ekki einskorðast við hverja einstaka fjármálastofnun heldur lítur eftir kerfinu sem heild, samspili eindanna sem mynda það og tengslum þess við raunhagkerfið. Einnig skorti að tengja saman þessa tvo þætti fjármálaeftirlits, þ.e. einda- og heildareftirlit, með ásættanlegum hætti.

Er þessu frumvarpi ætlað að setja lagaramma utan um þá samþættingu.

Í öðru lagi var ekki nægur gaumur gefinn að útbreiddum og viðvarandi hagsmunaárekstrum og óæskilegum hvötum í fjármálageiranum sem stafa annars vegar af ósamhverfum aðgangi að upplýsingum og hins vegar af ágalla í meðferð á hagnaði og tapi þar sem hagnaður af fjármálaviðskiptum féll í hlut eigenda og stjórnenda fjármálafyrirtækja þegar vel gekk en tap, þegar á móti blés, var borið af hinu opinbera, þ.e. almenningi.

Ýmsar þær breytingar sem gerðar hafa verið á lögum um fjármálafyrirtæki frá árinu 2008 hafa verið viðbrögð við þessum göllum. Er enn unnið að úrbótum á þessu sviði, m.a. með frumvarpi til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki sem mun koma í þingið á næstu sólarhringum.

Í þriðja lagi var viðbúnaður við fjármálaáföllum ónógur. Þannig voru hvorki til staðar almennar reglur né stjórnskipulag til að auðvelda skila- og slitameðferð fjármálafyrirtækja sem lent höfðu í fjárhagskröggum eða stefndu í þrot, reglur til að girða fyrir þá viðskiptahegðun sem vandanum olli eða reglur sem tryggðu órofið framhald bráðnauðsynlegrar fjármálaþjónustu þegar fjármálafyrirtæki riða til falls.

Hef ég þegar skipað nefnd sem hefur það hlutverk að semja frumvarp til laga um skilameðferð fjármálafyrirtækja sem byggir bæði á nýju evrópsku regluverki og reynslu okkar frá því síðla árs 2008.

Mun ég nú, hæstv. forseti, fara nokkrum orðum um meginefni frumvarpsins. Í því er lagt til að settur verði á stofn formlegur vettvangur stjórnvalda sem hafa á yfirsýn yfir stöðu og þróun fjármálamarkaðar og þeim vettvangi skapaður formlegur lagalegur grundvöllur.

Gerð er tillaga um stofnun annars vegar fjármálastöðugleikaráðs þar sem sitja æðstu embættismenn þeirra stofnana sem hafa með höndum eftirlit með einstaka aðilum fjármálamarkaða, svokallað eindaeftirlit, þ.e. Fjármálaeftirlitsins, þeirra sem eiga að hafa heildaryfirsýn yfir stöðu þjóðarbúsins, þ.e. Seðlabanka Íslands, og þess sem hefur forustu um rekstur ríkisins, þ.e. fjármála- og efnahagsráðherra. Hins vegar verður sett á fót sérfræðinganefnd sem kölluð er kerfisáhættunefnd í frumvarpinu og undirbýr umfjöllun fjármálastöðugleikaráðs.

Óróleiki og áföll á fjármálamarkaði geta, eins og við öll vitum, haft veruleg áhrif á opinber fjármál. Af fenginni reynslu hérlendis sem erlendis má ætla að áföll á fjármálamarkaði kalli á beina eða óbeina aðkomu ríkissjóðs. Er því nauðsynlegt að viðbrögð við slíkum áföllum séu leidd af þeim ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins.

Rétt er að ítreka að samkvæmt frumvarpinu er hvorki fjármálastöðugleikaráði né kerfisáhættunefnd ætlað að hrófla við sjálfstæði Seðlabanka Íslands eða Fjármálaeftirlitsins.

Til álita kom að leggja til breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands og opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi til að hnykkja á ákvæðum sem varða fjármálastöðugleika. Að svo stöddu hefur verið ákveðið að gefa umfjöllun um þau atriði lengri tíma, m.a. vegna fyrirhugaðra breytinga á lagaumhverfi skilameðferðar fjármálafyrirtækja og innstæðutrygginga, svo og breytinga á lögum um Seðlabankann sem verið er að undirbúa.

Legg ég til, hæstv. forseti, að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.