leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna, hvort ég væri sammála því að nota mætti svigrúm til þess að vinna að fleiru en að lækka skuldir heimilanna og styrkja innviði, kannski auka opinbera þjónustu og leggja meira í heilbrigðiskerfið og menntakerfið væntanlega og slíkt. Svarið við því er jú. Ég held að við þurfum að vinna að öllum þessum þáttum. Ein leið til að gera það sé að fara í þessa almennu lækkun skulda heimilanna, það mun hafa góð áhrif og auka umsvif, auka tekjur ríkissjóðs og gera okkur betur kleift að byggja upp skattstofna sem þarf til þess að ráðast í að styrkja innviði. Auk þess, eins og fram kom í kosningabaráttunni, var rætt um ákveðið svigrúm og hér, eins og kom fram í ræðu hv. þingmanns, er ekki verið að nota nema hluta af því til að lækka skuldir heimilanna. Afgangurinn mun væntanlega fara til þessara verkefna, að greiða niður skuldir ríkissjóðs og styrkja innviði.