143. löggjafarþing — 91. fundur,  7. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[18:11]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegur forseti. Mig langar að verja drjúgum hluta ræðu minnar í að rekja nokkur samtöl sem ég hef átt við fólk á götunni. Þetta er mál sem hefur mikið verið rætt. Það var rætt mikið á síðasta kjörtímabili, tók mikla athygli í kosningabaráttunni. Við ræddum þetta mál líka í kjölfar þess að hugmyndir um þessar skuldaniðurfellingar voru viðraðar fyrst 1. desember. Við í Bjartri framtíð vorum við afgreiðslu fjárlaga eini flokkurinn sem greiddi atkvæði á móti því að verja peningum í þessi áform og við höfum ekki breytt þeirri afstöðu, heldur mun frekar styrkst í henni.

Ég fór þá ágætlega yfir röksemdirnar. Við teljum að þessum miklu peningum sé hægt að verja mun betur í þágu heimila og fyrirtækja á Íslandi og við vekjum athygli á því nú, eins og við gerðum þá, að ekkert mat hefur farið fram á því hvernig hægt sé að verja þessum peningum sem best. Það liggur ekki fyrir neitt mat á fórnarkostnaði við það að verja peningunum með þessum hætti.

Ég sagðist ætla að rekja nokkrar samræður við fólk á förnum vegi. Fyrst er það Vesturbæingurinn sem ég hitti í morgundimmunni rétt í kjölfar þess að tillögurnar höfðu verið kynntar. Sá átti drjúgar eignir, og á enn, í Vesturbænum en skuldar eitthvað í þeim. Hann átti ekki orð til að lýsa því hvað það væri furðuleg forgangsröðun að samkvæmt útreikningum hans í kjölfar kynningarinnar ætti hann heimtingu á nokkrum milljónum sem hann sagðist síðan hlæjandi ekki þurfa neitt.

Og þetta kemur úr ríkissjóði. Gagnvart þessum manni átti ég fá svör önnur en að deila þeirri skoðun hans að þetta væri ómarkviss og undarleg ráðstöfun ríkisfjár.

Svo er það leigjandinn, ágætisvinur minn sem hefur alltaf verið á leigumarkaði. Hann er foxillur. Hann er reiður yfir þessu og hann reiðist í hvert sinn sem málsvarar þessara tillagna tala um að þær séu byggðar á einhverjum réttlætissjónarmiðum. Hann horfði á leiguna hækka í kjölfar hrunsins. Hann spyr: Af hverju er ekkert verið að bæta mér það tjón sem ég varð fyrir ef það á að fara að bæta fólki tjón eftir á? Það er ekki verið að gera neitt sérstakt í málefnum leigjenda þannig að bara það er svo rosalega sterk röksemdafærsla gegn því að þessi aðgerð sé eitthvað sérstaklega í þágu réttlætis.

Hv. þm. Vilhjálmur Bjarnason minntist á þá sem tóku lögleg gengislán. Það er líka einn sem ég hef hitt sem er með lögleg gengislán. Það á ekki að bæta honum neitt tjón og ef það er einhver sem sannarlega hefur orðið fyrir forsendubresti í lántöku sinni er það einstaklingur með löglegt gengislán. Það vekur furðu að það á ekkert að gera fyrst uppleggið er einhvers konar réttlæti eða almenn aðgerð til að mæta augljósum forsendubresti þessara lántakenda.

Svo er það maðurinn sem fékk 20% flata afskrift af láni sínu í Landsbankanum árið 2009 í kjölfar efnahagshrunsins. Það var svolítið lærdómsríkt að tala við hann. Þá rann upp fyrir mér hvað við erum fljót að gleyma öllum þessum aðgerðum sem var gripið til. Samfélagið allt, viðskiptabankarnir og ríkið, er þegar búið að verja örugglega hátt í 300 milljörðum í það að koma til móts við heimilin í skuldavandanum. Ég man eftir almennri aðgerð Landsbankans strax í kjölfar hrunsins þar sem öllum lántakendum hans gafst kostur á því ef þeir stæðu í skilum, held ég að hafi verið skilyrðið, að leiðrétta höfuðstól sinn um 20%. Þessi lántakandi gerði það og hans lærdómur var að hann sá eiginlega engan mun. Höfuðstóll lánsins var aftur kominn upp í sömu upphæð einu og hálfu ári síðar eða svo.

Hver er lærdómurinn af þessu? Sá sem margir eru að segja núna: Þessar aðgerðir munu skila litlum árangri ef ekki fylgir með eitthvert plan um að lækka verðbólgu á Íslandi. Verðbólgan mun éta upp ávinninginn. Við getum orðað það þannig að við séum að fara að pissa í skóinn okkar, eins og ég hef orðað það áður. Ef ekki fylgir með nein sýn á efnahagsmálin og hvernig á að ná meiri stöðugleika mun óstöðugleikinn éta upp ávinning af þessum aðgerðum. Það var lærdómurinn af því að tala við þennan mann. Hann var þegar búinn að gleyma þessari höfuðstólslækkun.

Svo er það útlendingurinn, ég var að reyna að útskýra fyrir honum stöðu efnahagsmála á Íslandi og segja honum að aðalkosningamálið væri að einn flokkurinn lofaði að greiða niður hluta af húsnæðisskuldum. Þessum manni fannst þetta ákaflega undarlegt og kannaðist ekki við þannig umræðu frá öðrum löndum að beinlínis ríkisvæða í raun og veru einkaskuldir. Í landi þessa manns held ég að skuldir heimila séu um 110% af landsframleiðslu, þær eru 108% hér miðað við árið 2012 sem eru nýjustu tölur sem ég hef í kollinum, lækkuðu úr 135% niður í 108% á árabilinu 2009–2012. 109% hlutfall skulda miðað við landsframleiðslu er sama hlutfall og var 2006. Hefði verið skynsamlegt þá að fara í að lækka höfuðstól heimilanna um 80 milljarða á fjórum árum? Hefði einhver ljáð máls á því, hefði einhver talið það skynsamlegt? Líklega hefði mætt fólki sami undrunarsvipurinn og var á andliti þessa útlendings sem velti fyrir sér af hverju við værum að þessu.

Iðnaðarmaðurinn sem ég hitti líka og fór að ræða um þetta við er skuldlaus. Hann hefur í sveita síns andlits borgað niður lánin sín, situr í skuldlausri íbúð og nýtur þar með góðs af erfiði sínu. Hann spurði: Er eitthvað í þessu fyrir mig? Það er nú allt réttlætið, honum verður ekki umbunað fyrir að hafa stritað og borgað niður skuldir sínar, en hann spurði hins vegar áhugaverðrar spurningar sem ég ætla líka að spyrja efnahags- og viðskiptanefnd: Gæti ég farið út í banka núna, spurði hann, og tekið lán upp á svo sem 1,5 milljónir og sagt síðan við bankann: Þetta verður greitt niður af viðbótarlífeyrissparnaðinum mínum?

Ég hafði ekki alveg svörin á reiðum höndum en ég held að hann gæti fundið leið til þess að gera þetta.

Hver er lærdómurinn af þessari samræðu? Til hvers erum við að hvetja með þessum aðgerðum? Erum við ekki að hvetja til lántöku, einkaneyslu? Af hverju erum við að því þegar til dæmis 500 blaðsíðna skýrsla Seðlabankans um stefnu í gjaldmiðilsmálum sem kom út fyrir einu og hálfu ári rekur það ágætlega að einhver stærstu og síendurteknustu hagstjórnarmistök Íslendinga snúast um það að takast ekki á við sveiflur í einkaneyslu? Hagstjórnaraðgerðir virðast alltaf einhvern veginn ýkja sveiflurnar. Þær vinna með sveiflunum í stað þess að vinna á móti þeim. Þetta er þess vegna líka röng tímasetning á svona aðgerðum.

Iðnaðarmaðurinn fór líka yfir það, af því að við fórum að ræða önnur mál, að það væri mjög slæmt ástand á verknámi á Íslandi. Í sumum greinum væri jafnvel bara einn fagmaður að kenna á öllu landinu. Þá hvatti ég iðnaðarmanninn til þess að horfa á þessa hluti í samhengi. Hér eru allt í einu til 100 milljarðar. Þeir eru til núna, þeir eru að fara að koma inn í ríkiskassann eða eins og mig minnir að hæstv. forsætisráðherra hafi orðað það: Þetta eru peningar sem munu hafa viðkomu í ríkissjóði. Flestallir peningar sem koma úr ríkissjóði eru þess eðlis, þeim er deilt út þaðan aftur, þetta er skattfé. Þetta eru peningar sem munu koma í ríkissjóð á næstu árum og ég hvatti iðnaðarmanninn til að hugsa þetta í samhengi. Peningarnir eru til, við getum notað þá.

Við getum notað peningana til að byggja upp menntun. Við getum notað þá til að laga vegina okkar sem safna upp viðhaldi sem er bara kostnaður sem við veltum á komandi kynslóðir ef við gerum ekki neitt. Við getum notað þessa peninga til að byggja upp velferðarkerfið, fara þar í nauðsynlegt viðhald og uppbyggingu sem er líka kostnaður sem við veltum bara á komandi kynslóðir ef við gerum ekki neitt. Við getum notað þessa peninga til að greiða niður opinberar skuldir og minnka þar með árlegan himinháan vaxtareikning ríkissjóðs. Það væri líka í þágu sjálfbærni og komandi kynslóða. Þetta getum við. En af hálfu ríkisstjórnarinnar hefur ekki einu sinni verið unnið mat á því hvernig þessum peningum væri sem best varið í þágu heimila og komandi kynslóða, í þágu okkar, í þágu atvinnulífsins. Ekkert mat. Hér gefur að líta eitthvert átakanlegasta dæmi um hugsunarleysi í íslenskri stjórnmálasögu, held ég. Hver er pælingin?

Lítum nú á hvaða röksemdir eru notaðar fyrir þessu.

Það er sagt að það eigi að mæta skuldavanda heimilanna, en í þeirri umræðu virðist enginn greinarmunur vera gerður á þeim sem eiga í greiðsluvanda og þeim sem eiga mögulega í skuldavanda. Þeir sem eru í skuldavanda eru samkvæmt skilgreiningunni þeir sem skulda mikið. En þeir eiga líka oft mikið. Þeir eiga eigur á móti skuldum sínum og í fyrirliggjandi tillögum ríkisstjórnarinnar verður ekkert tillit tekið til þessara eigna.

Þeir sem eiga í vandræðum með að greiða af lánum sínum — þetta sýna allar greiningar, m.a. frá umboðsmanni skuldara — eru ekki endilega þeir sem skulda mikið. Það er fólk með lágar tekjur. Hjá umboðsmanni skuldara er jafnvel svo hundruðum skiptir fólk sem getur einfaldlega ekki greitt neitt af neinu húsnæði. Það er ekki verið að hjálpa því fólki, skuldaleiðréttingin gerir ekkert fyrir það fólk þannig að það er ekki verið að hjálpa fólki í greiðsluvanda.

Það er sagt að það eigi að mæta réttlætissjónarmiðum. Ég hef aðeins tæpt á því í umræðunni eins og margir aðrir að það á ekki að bæta leigjendum skaðann, það á ekki að bæta þeim hjá húsnæðissamvinnufélögum skaðann. Allir urðu fyrir skaða, líka þeir sem eru skuldlausir. Verðlag hækkaði, það varð kaupmáttarrýrnun í samfélaginu. Kannski er eina réttláta leiðin að láta bara alla hafa pening. Kannski verða þeir sem mæla fyrir þessari tillögu að segja okkur af hverju það væri ekki betri hugmynd. Mér fyndist það dæmi um bruðl í meðferð opinberra fjármuna.

Það er sagt að það eigi að leiðrétta forsendubrest, en í hinu orðinu er forsendunum á ákveðinn hátt fagnað. Við urðum vitni að því í umræðu í óundirbúnum fyrirspurnatíma fyrr í dag að það eru einmitt forsendurnar í efnahagslífinu, gengissveiflurnar, sem kallaðar eru aðlögunarhæfnin sem felst í því að hafa íslensku krónuna sem er dásömuð og sögð bjarga atvinnulífinu. Hvernig geta þessar sveiflur þá í hinu orðinu verið forsendubrestur, sérstaklega þegar það liggur fyrir að þetta endurtekur sig margoft í íslensku samfélagi, að gengið fellur, það verður verðbólguskot? Eru þetta ekki forsendurnar?

Við í Bjartri framtíð viljum laga forsendurnar og við teljum að í þessum aðgerðum sé í rauninni ekkert sem lagar forsendurnar. Hvað væri best að gera fyrir íslensk heimili? Hvernig þjóðfélag viljum við sjá sem væri betra fyrir íslensk heimili? Væri það ekki til dæmis þjóðfélag með lægri vöxtum? Er til einhver betri kjarabót fyrir húsnæðiskaupendur en að geta farið út í banka og fengið óverðtryggt langtímalán og treyst því að það sé með 3–4% vöxtum? Þetta tíðkast í nágrannaríkjunum. Væri það ekki kjarabót? Mun ég á minni ævi, miðað við það hvernig hagstjórn er háttað og hvernig við ætlum greinilega að hátta henni, upplifa það samfélag einhvern tímann? Er það líklegt? Eru þessar aðgerðir líklegar til að leiða þangað? Mér sýnist ekki. Þær eru þensluhvetjandi, þær munu líklega auka verðbólgu og hækka vexti. Greiningar sýna það.

Fjölbreytt atvinnulíf yrði til mikilla hagsbóta fyrir íslensk heimili, atvinnulíf sem borgar há laun á alþjóðlegan mælikvarða. Það væri uppgangur alþjóðlegra fyrirtækja, hugverkaiðnaðarins, tæknigeirans og græns iðnaðar. Ríkisstjórnin er ekki að vinna að neinu slíku. Sá iðnaður kallar á aðra mynt, en ríkisstjórnin skellir við skollaeyrum.

Með öðrum orðum fylgir þessu engin framtíðarsýn um betri lífskjör og betra samfélag. Þetta er einhvers konar einskiptisaðgerð sem mætir ekki einu sinni (Forseti hringir.) röksemdunum sem eru notaðar til að réttlæta þetta. Eftir stendur að þetta er bara, (Forseti hringir.) ég get ekki kallað það annað, bruðl með opinbert fé.