leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Hv. þingmaður fór ágætlega yfir kosningaloforð Framsóknarflokksins og þær væntingar sem hann byggði upp meðal kjósenda í fyrra, fyrir síðustu alþingiskosningar, þar sem hann lofaði 240–300 milljarða lækkun verðtryggðra lána heimilanna. (Gripið fram í: Nei.)
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að kjósendur Framsóknarflokksins hafi ekki orðið fyrir forsendubresti miðað við þær væntingar og hvort hægt sé að bæta upp með einhverjum hætti þann forsendubrest sem þeir kjósendur urðu fyrir. Það kannski sýnir sig í skoðanakönnunum.
Hvernig telur hv. þingmaður að hægt væri að verja þeim miklu fjármunum til gagns fyrir þá íbúa í landinu sem eru verst settir?