143. löggjafarþing — 91. fundur,  7. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[19:17]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Svona hefur þetta ekki verið kynnt fyrir mér. Ég er að heyra af því fyrst núna. Við píratar forgangsröðum náttúrlega málum okkar og höfum ekki jafnmikla þekkingu og fólk til að lúslesa alla þessa hluti þannig að það er gott að hafa öfluga stjórnarandstöðuflokka eins og Samfylkinguna og VG. En ef það verður raunin að greiðslubyrðin lækkar ekki hjá fólk sem býst við því, þrátt fyrir einhverja lækkun lánanna, held ég að það verði fyrir miklum vonbrigðum, af því að það er akkúrat það sem fólk bjóst við. Það bjóst við að lánin mundu lækka og greiðslubyrðin í kjölfarið.