143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Edward H. Huijbens (Vg):

Virðulegur forseti. Ég vil gera að umtalsefni umræðu um frumvarp til laga um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána en sú umræða hefur farið fram síðan í gær og stóð langt fram á kvöld í gærkvöldi og mun sennilegast gera það aftur í dag og í kvöld.

Um er að ræða frumvarp sem er endanleg birtingarmynd lofaðrar upprisu millistéttar og heimsmets í skuldalækkunum, svo vitnað sé í orð hæstv. forsætisráðherra á ýmsum fundum í aðdraganda frumvarpsins.

Það liggur alveg fyrir á hverra vegum frumvarpið er og hver það er sem hefur talað hvað mest fyrir því, bæði í aðdraganda kosninga vorið 2013 og nú það sem liðið er af þessu kjörtímabili. Þetta er stóra mál hæstv. forsætisráðherra, það mál sem kom honum í þann stól sem hann situr nú í og hans flokk í þá lykilstöðu við stjórn þessa lands sem hann er nú í.

Það má því undrum sæta, og í raun finnst mér það fráleitt, að hæstv. forsætisráðherra hvorki fylgi frumvarpinu úr hlaði né taki umræðu við okkur þingmenn um það. Ég vil því óska þess að undir liðnum um störf þingsins um þetta mál verði hæstv. forsætisráðherra nærstaddur og taki þátt í andsvörum og ræðum um þetta mikilvæga frumvarp.