143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Það er hægt að segja að ferðamönnum sem koma til landsins fjölgi. Við sögðum áður að ferðamannatíminn væri að hefjast en nú fjölgar ferðamönnum. Þeir hafa verið vítt og breitt um landið í allan vetur og þeim fjölgar stöðugt.

Við höfum líka talað um það í þessum sal og á opinberum vettvangi að við vildum létta af ferðaþjónustunni og atvinnulífinu að sækja um leyfi og koma reglugerðafarganinu í það horf að eðlilegt sé að vinna í kringum það.

Fyrir nokkrum árum hófu ungir djarfir menn að flytja til landsins báta sem kallaðir eru RIB-bátar, þeir taka 20 farþega en samkvæmt reglugerð sem byggt er á og sett var fyrir 65 árum mega þeir einungis flytja 12 farþega. Þetta eru afar örugg skip, björgunarskip sem eru úr trefjaplasti og eins eru slöngur í kringum þá, svokallaðar tuðrur, og þeir geta flotið hvort sem trefjaplastið gefur sig eða tuðran auk þess sem allir áhafnarmeðlimir og farþegar eru í björgunarvestum og flotbúningum sem þekktust ekki fyrir 65 árum.

Samt skal byggt á þessum reglum.

Það er búið að tala um það, bæði í ráðuneytinu og stofnunum sem fara með þetta mál, að það eigi að ná sátt í málinu og ég hvet Samgöngustofu til að ná sátt í málinu svo þessi atvinnugrein geti haldið áfram að blómstra. Þetta er einn af sprotunum sem vex í ferðaþjónustunni og hann er mikilvægur eins og allir hinir. Það er líka mikilvægt að gæta að öryggi þeirra sem ferðast, hvort sem er á sjó eða landi, og við erum ekki að tala gegn því en við erum að tala um að við viljum hafa eðlilegar forsendur fyrir reglum og þeim lögum sem við viljum að gangi eftir í samfélaginu.