143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

störf þingsins.

[13:38]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf):

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs í dag til að halda áfram að hvetja æðstu ráðamenn þjóðarinnar og þingmenn til að efla og styrkja virðingu Alþingis. Sú vísa er aldrei of oft kveðin og það segi ég vegna þeirra viðbragða sem ég verð var við úti í samfélaginu.

Það er nánast sama hvar maður stígur niður fæti, fólk fer að tala við mann um stjórnmálin og hið almenna ástand í þjóðfélaginu. Að sjálfsögðu sýnist sitt hverjum um það eins og gengur og gerist. Vissulega má sjá batamerki víða, enda hagvöxtur að aukast og atvinnuleysi að minnka og bjartsýni að aukast lítillega, bæði hjá fyrirtækjum og almenningi. Þetta er vissulega jákvætt og ber að fagna sem ég veit að allir gera, en við verðum að gera betur og horfa til framtíðar.

Það sem ég ætlaði að tala um er virðingin fyrir stjórnmálamönnum og Alþingi og þá hvers vegna hún virðist ekki vera meiri en raun ber vitni. Getur það verið vegna svikinna loforða stjórnmálaflokka sem spenna bogann hátt í kosningabaráttunni og verða síðan að bakka með flest það sem lofað var?

Kannski. Kannski ekki.

Í aðdraganda síðustu kosninga sagði vinur minn við mig að hann ætlaði sér að kjósa Framsóknarflokkinn því að hann væri eini flokkurinn sem ætlaði sér að gera eitthvað fyrir heimilin. Ég reyndi að malda í móinn og sagði að þetta væru óraunhæf loforð sem nánast ómögulegt væri að standa við — en hann hélt nú ekki. Ég hitti þennan mann í vikunni og spurði hvernig honum litist á skuldaleiðréttinguna sem nú hefur verið lögð fram.

Svar hans var á þá leið að hann mundi aldrei taka mark á nokkrum stjórnmálamanni aftur, þeir stæðu aldrei við neitt sem þeir segðu og bæru enga virðingu fyrir kjósendum sínum og alls ekki hver öðrum.

Hæstv. forsætisráðherra sagði á dögunum að tímabært væri að segja skilið við hugarfar afturhalds, neikvæðni og niðurrifs og að flest benti til þess að svartnættinu væri að slota og trú á eigin getu að eflast, sem er mjög jákvætt og ég tek undir með forsætisráðherra með það. En hann bætti síðan við að það væri fólk í þessu samfélagi sem nærðist á því og gleddist yfir hruninu. Hann sagði líka að það væri einna helst í innstu myrkviðum netsins og í ræðustól Alþingis sem hagsmunaverðir svartnættisins héldu vöku sinni.

Hæstv. forseti. Þetta þykja mér frekar súr ummæli um okkur þingmenn og þau eru alls ekki til þess fallin að auka virðingu fyrir almenningi, Alþingi eða umræðunni í samfélaginu.

Hæstv. forseti. Lögmál virðingarinnar er að sá sem ber virðingu fyrir öðrum öðlast virðingu sjálfur.