143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[16:58]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Edward H. Huijbens fyrir andsvarið og þær spurningar sem fylgdu með. Já, ég deili þeim sjónarmiðum sem komu fram í andsvarinu, ekki síður í seinna andsvarinu. Það er mjög mikilvægt að við hugum til framtíðar að fjölbreyttum úrræðum og í því ljósi trúi ég því líka að með breyttu samfélagsmunstri hugi fólk seinna að séreignarúrræðinu. Ég leyfi mér að halda því fram að myndin muni ekki skekkjast í þá veru sem hv. þingmaður sagði, a.m.k. skulum við vona að svo verði ekki.