143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[17:45]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugleiðingar. Það er mjög gott að þetta hugtak „greiðsluvandi heimila“ kom fram vegna þess að frumvarpið fjallar ekki um greiðsluvanda heimila eða heimili í greiðsluvanda. Það fjallar um skuldavanda, eins og segir í inngangi að athugasemdum við frumvarpið, með leyfi forseta:

„Hinn 28. júní 2013 samþykkti Alþingi þingsályktun um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.“

Í öllum okkar framsögum um þetta mál höfum við talað um heimili í skuldavanda og að skuldsetning heimila á Íslandi sé of mikil, 108% af vergri þjóðarframleiðslu. Auðvitað eru sum heimili í greiðsluvanda og þau geta þurft á vissum aðgerðum að halda. Þetta eru ekki þær aðgerðir. Það hefur margoft komið fram. Það hefur líka oft komið fram að þetta er ekki lausn á vanda allra og síst af öllu þeirra sem eru í mestum vanda. En þetta er almenn efnahagsaðgerð, leiðrétting á forsendubresti sem nær til 70 þúsund heimila sem réttilega eru ekki öll í greiðsluvanda en þau eru öll í skuldavanda.