leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegi forseti. Nei, ég held að það sé óhætt að segja að þetta sé ekkert endilega eitthvað sem sveitarfélögin eigi. Engu að síður er það þannig í lögum um lækkun á þessum skattstofni og hækkun á launatengdum gjöldum og ýmislegt sem við kemur rekstri sveitarfélaga. Ég held að ég geti fullyrt að flestöll sveitarfélög á landinu hafi svo sannarlega tekið til í rekstri sínum eftir hrun. Þar var mikið tekjufall, mikil útgjaldaaukning og lánin hjá sveitarfélögunum hækkuðu líka eins og hjá hverju einasta heimili á landinu.
Ég tel að öll sveitarfélög á landinu standi í góðum rekstri og kannski gæti ríkisstjórnin lært svolítið af því.