143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[19:16]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar.

Ég fór yfir það áðan, þetta er raunverulega mjög einfalt. Hér er verið að tala um þá sem minnst hafa á milli handanna, bera minnst úr býtum, samkvæmt þessu frumvarpi. Ég skal taka undir hrós til fyrri ríkisstjórnar í þá veru að gert var betur við einn hóp en annan á síðasta kjörtímabili, það voru þeir sem minnstar höfðu tekjurnar og minnstar höfðu bæturnar. Nú skal ég hrósa fyrrverandi ríkisstjórn.

En það er nú svo að tekjur haldast oft og iðulega í hendur við skuldbindingar. Það er eðli að við hærri tekjur sé ráðist í hærri skuldbindingar en við lágar tekjur að ráðast í lægri skuldbindingar. Þess vegna myndast kannski sá mismunur sem verið er að nota hér gegn frumvarpinu, að þeir sem hafa kannski hærri tekjur, (Forseti hringir.) þeir skulda meira og eru því að fá prósentulega séð hærri (Forseti hringir.) upphæð. Ég verð að koma betur að svarinu, þetta er svo stutt, virðulegi forseti.