143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[20:51]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hjörvar spurningarnar. Já, það er rétt sem kemur fram í máli þingmannsins og spurningu hans, það er í raun verið að borga niður áhættu bankanna með því að greiða fyrst niður greiðslujöfnunarreikningana. Það kann að vera að einhverjum finnist sanngirnismál að hjálpa bönkunum svolítið meira en mér hefur heyrst í umræðunni, að minnsta kosti hafa hv. stjórnarþingmenn gagnrýnt síðustu ríkisstjórn býsna mikið fyrir að hjálpa fjármálastofnunum en ekki fólki, eins og þeir hafa sagt. Nú höggva þeir í sama knérunn. Ég held að þetta þurfi að leiðrétta í meðförum nefndarinnar. Það er afar mikilvægt.

Þingmaðurinn spurði einnig út í námslánin og hvort þá ætti að vera með sambærilegar ráðstafanir fyrir þá hópa, leigjendur o.fl. Ég held að það skynsamlegasta í því væri að nota hluta af því svigrúmi sem hv. stjórnarþingmenn hafa fundið til að bæta hag heimilanna í landinu til að styðja við bakið á þessum hópum en vera ekki að greiða niður lán og færa fé til fólks sem er ekki í neinum greiðsluvanda.