143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[20:53]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég spyr þá hv. þingmann hvernig hann teldi eðlilegast að standa að því, hvort þá ætti að miða við það að fólk með eignir umfram ákveðin mörk ætti ekki að njóta þessara leiðréttinga eða fólk með tekjur yfir einhverjum ákveðnum mörkum. Ætti til dæmis fólk sem greiðir auðlegðarskatt, á kannski yfir 100 milljónir, jafnvel yfir 1.000 milljónir í hreinni eign, að vera undanskilið þessum sérstöku framlögum úr ríkissjóði? Ætti jafnvel að ganga lengra í því efni að afmarka hópinn sem mundi njóta þessa?

Síðan vil ég spyrja hv. þingmann um þá sem eru í mesta vandanum. Fimm þúsund heimili fengu úrræði á síðasta kjörtímabili sem þeirra vegna munu ekki njóta þessara aðgerða. Það er að uppistöðunni til það fólk sem fór í gegnum 110%-leiðina svokölluðu. Minnist hv. þingmaður þess að hafa heyrt þingmenn stjórnarflokkanna, einkanlega Framsóknarflokksins, í aðdraganda kosninga tala um það fólk sem fór í gegnum 110%-leiðina, lýsa því hvernig skuldir þess hefðu hækkað vegna verðbólgu og vaxta eftir að það fór í gegnum 110%-úrræðið og væru orðnar því algjörlega óbærilegar og að koma yrði til móts við þetta fólk?

Finnst þingmanninum það vera í samræmi við þann málflutning að 110%-leiðin hafi ekki verið nógu gott úrræði og ætla nú að undanskilja sérstaklega þessi fimm þúsund heimili sem fengu það úrræði? Eða hefði verið sanngjarnt af hálfu stjórnarflokkanna að segja þessum fimm þúsund heimilum fyrir kosningar að það ætti að skilja þau eftir á köldum klaka?