143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[21:23]
Horfa

Edward H. Huijbens (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur. Það er kannski gaman að halda áfram með þær söguskýringar sem hér eru í gangi. Þess má geta að á sama tíma reið téður Jón Steingrímsson á bikkju sinni norður í land, hokraði við Bægisá og þýddi Shakespeare og Locke. Auðurinn sem bjó í anda hans var aldeilis mikill. Þetta var vellauðugur maður, þó bláfátækur á okkar veraldlega mælikvarða.

Það er kannski þetta sem við gætum líka notað okkur til leiðbeiningar út úr kreppu okkar og vanda, þ.e. að hlúa að andans gæðum, gæðum lífsins, öðru en þessu veraldlega. Þá gætum við hugsanlega notað eitthvað af þessum fjármunum sem koma í leiðréttingunni í velferðarkerfið og menntakerfið og jafnvel í staðinn fyrir að beina þeim til fólks sem er vel stætt og þarf ekkert endilega á sérstaklega mikilli hjálp að halda. Það gæfi okkur tækifæri til að þýða Shakespeare og Locke um leið og við elduðum upp úr ólífuolíu og saffran á tímum móðuharðinda.