leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigrúnu Magnúsdóttur fyrir hennar ágætu ræðu. Ég heyri á ræðu þingmannsins að hún er einlæg í þeim vilja sínum að koma til móts við þá sem hafa lent í vanda vegna hruns efnahagskerfisins hér fyrir fimm, sex árum.
Það sem ég velti fyrir mér er hvort þingmaðurinn sé viss um að þetta frumvarp hjálpi raunverulega þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Það er kjarni málsins og þar liggur kannski skoðanamunurinn.
Mig langar að spyrja hv. þingmann að tvennu. Finnst þingmanninum til að mynda að hv. þingnefnd ætti að skoða hvort setja ætti einhver eignamörk, t.d. hjá stóreignafólki, eða tekjumörk hjá hátekjufólki um það hvar við eigum að setja strikið áður en við hættum að borga út peninga til þeirra sem sannarlega þurfa ekki á þeim að halda? Telur þingmaðurinn að eitthvað slíkt væri hægt að gera í meðförum þingnefndarinnar?
Síðan spyr ég einnig, og ég skal koma að því í seinna andsvari mínu af hverju mér finnst það mikilvægt þó að það sé svolítið aftur á bak: Hvað finnst þingmanninum um að skoða hvort hægt væri að taka einnig inn lán sem sannarlega hafa áhrif á leiguverð til einstaklinga, þó að það séu ekki lán þessara sömu einstaklinga, vegna þess að þar hefur líka orðið raunverulegur forsendubrestur? Með þessari aðgerð er hægt að koma til móts við þetta fólk líka af því að hún er einföld eins og hv. þingmaður kom inn á.