leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum innilega fyrir. Já, ég tel að þessi aðgerð hjálpi þeim sem þurfa á því að halda. Íslensk heimili þurfa á hjálp að halda, það er svo einfalt.
Ég ætla ekki að setja þingnefndinni fyrir eða velja henni úrræði. Ég treysti þeim þingmönnum sem sitja í þeirri ágætu nefnd til að skoða það. Við setjum mörk og höfum þegar sett þak. Við skulum bara leyfa nefndinni að skoða málið, hún hefur hlustað á ábendingar og annað sem hér hefur komið fram.
Auðvitað getur maður haft skoðanir á því að leiguverð sé orðið mjög hátt og að það fólk geti þurft á hjálp að halda. Það er samt ekki með fasteignaskuldir. Frumvarpið gengur út á það að greiða niður fasteignaveðlán. Það þýðir ekki að rugla saman mörgum frumvörpum. Þetta er meira svar til annars ágæts þingmanns í sama flokki og fyrirspyrjandinn. Þetta frumvarp er ekki leið til að koma til móts við leigjendur. Það gerum við á öðrum stað og það mun koma í ljós innan tíðar á Alþingi, ég get glatt þingmanninn með því.
Við erum með þessu frumvarpi að hjálpa íslenskum heimilum sem skulda of mikið.